Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus, telur að gagnrýni á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra megi rekja til mistaka í því sem haft var eftir henni. Þorgerður Katrín hefur verið harðlega gagnrýnd eftir að hún sagði við Morgunblaðið í dag að hún hefði aldrei rætt við Rob Jetten forsætisráðherra Hollands um undanþágur frá sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins.
Eiríkur: „Engar forsendur fyrir því að saka utanríkisráðherra um ósannsögli“