Fimm voru handteknir á Akureyrií aðgerð lögreglu og sérsveitar í gær fyrir að hafa skotvopn í fórum sínum. Byssurnar sem lögregla fann reyndust ekki vera alvöru skotvopn en varðstjóri lögreglunnar á Norðurlandi eystra sagði byssurnar vera „nákvæmar eftirlíkingar af skotvopni“ fyrr í dag.
Sjá einnig: Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“
Mennirnir eru í kringum tvítugt en sá yngsti er sautján ára drengur, samkvæmt heimildum fréttastofu. Kári Erlingsson, varðstjóri lögreglunnar á Akureyri, segir sig ekki geta staðfest að einn þeirra sé undir lögaldri en segir að mennirnir séu „um átján ára til tvítugt.“
Lögregla hafi fyrst áttað sig á að ekki væri um alvöru skotvopn að ræða þegar verið var að haldleggja vopnin í kjölfar handtöku, að sögn Kára. Lögreglu hafi fyrst borist tilkynning um einstaklinga að miða vopnum úr bílum að vegfarendum rétt fyrir klukkan tvö síðdegis í gær.
Heimildir fréttastofu herma að byssurnar hafi verið keyptar í leikfangavöruversluninni Kids Coolshop fyrr um daginn. Ungu mennirnir hafi verið stöðvaðir af lögreglu við byssuleik. Hér að neðan má sjá myndir af annarri tveggja umræddra byssa.
Byssan er frá leikfangaframleiðendanum Gonher og er eftirlíking af MP5 A5 vélbyssu.
Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot.
Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot.