Á lista yfir 250 launahæstu ríkisstarfsmenn landsins er aðeins að finna einn ráðherra, þ.e. Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Hún fær tæpar 2,9 milljónir á mánuði, en engu að síður eru 178 ríkisstarfsmenn launahærri en hún.
Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, situr í 20. sæti listans með um 4,2 milljónir króna í mánaðarlaun.
Aðra kjörna fulltrúa og ráðherra er ekki að finna á listanum, en læknar og stjórnendur heilbrigðisstofnana eru langstærsti hópurinn á meðal þeirra 250 launahæstu, nær 90%.
Þetta kemur fram í minnsiblaði fjármálaráðherra til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis.
Með tvöföld laun forsætisráðherra
Launahæsti ríkisstarfsmaðurinn er framkvæmdastjóri á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða með 6,6 milljónir króna í heildarlaun á mánuði. Það eru meira en tvöföld laun forsætisráðherra landsins og meira en helmingi hærri en laun forseta lýðveldisins.
Annar launahæsti ríkisstarfsmaðurinn er yfirlæknir á Heilbrigðisstofnun Austfjarða, með tæpa 6,1 milljón króna í laun á mánuði. Sá þriðji er einnig yfirlæknir á sömu heilbrigðisstofnun og með nær sömu laun.
Næstu fjögur sætin skipa yfirlæknar á ýmsum sjúkrahúsum og heilbrigðisstofnunum með laun á bilinu 4,8-5,4 milljónir króna á mánuði.
Í 8. sæti listans er flugstjóri hjá Landhelgisgæslu Íslands með 4,6 milljónir króna í laun.
Í 9. sæti er sérfræðilæknir á Landspítala með 4,5 milljónir og í 10. sæti yfirlæknir á Heilbrigðisstofnun Vesturlands.
Flugstjórar og flugvirkjar en enginn forstjóri
Læknar og stjórnendur sjúkrahúsa, heilbrigðisstofnana og heilsugæslu eru í miklum meirihluta meðal 250 launahæstu ríkisstarfsmannanna eða 222 talsins. Þá eru 17 flugstjórar og flugvirkjar Landhelgisgæslunnar á listanum, en forstjóri gæslunnar, Georg Kr. Lárusson er ekki á listanum.
Þar er einnig að finna Benedikt Bogason, forseta hæstaréttar, auk fjögurra hæstaréttardómara og þriggja dómstjóra héraðsdómstóla. Þeir eru allir heldur neðarlega á blaði, sá efsti er dómstjóri sem situr í 149. sæti listans. Þrír hæstaréttardómarar með sömu laun skipa neðstu þrjú sætin meðal 250 launahæstu ríkisstarfsmannanna.
Umboðsmaður Alþingis, Kristín Benediktsdóttir, er einnig á listanum en hún situr í 208. sæti hans.
Þess má geta að listinn sýnir aðeins stofnun og starfsheiti, ekki nöfn ríkisstarfsmanna. Fyrir vikið liggur ekki fyrir hvaða einstaklingar eru á bak við upplýsingarnar í öðrum tilfellum en þeim þar sem aðeins einn er um tiltekinn starfstitil.