Karlmaður á fertugsaldri er látinn eftir líkamsárás sem átti sér stað í Breiðholti á öðrum tímanum í nótt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Lögreglu barst tilkynning um málið skömmu fyrir klukkan hálftvö í nótt. Á vettvangi voru tveir með alvarlega áverka. Annar þeirra var úrskurðaður látinn skömmu eftir komuna á slysadeild en hinn liggur á gjörgæsludeild og er ástand hans sagt stöðugt. Fram kemur að þrír hafi verið handteknir vegna málsins. Tekur lögregla eins fram að bæði þolendur og þeir sem eru í haldi lögreglu séu Íslendingar.
Einn látinn eftir stunguárás í Breiðholti í nótt