Karlmaður á fertugsaldri hefur verið handtekinn vegna gruns um aðild að skógareldi í Spokane-sýslu í Washington-ríki í Bandaríkjunum. Vitni segjast hafa séð manninn við Old Trails, vestan við borgina Spokane, skömmu áður en eldurinn kviknaði.
Þrír stórir skógareldar loga í Spokane-sýslu í Washington, á vesturströnd Bandaríkjanna. Umfang eldanna nær yfir ríflega 3.000 hektara svæði sem enn hefur ekki tekist að ná stjórn á.
Lögregla fann eldspýtur og kveikjara við húsleit
Lögreglan í Spokane handtók í gær hinn 37 ára gamla Aaron F. Farinacci. Hann hefur verið ákærður fyrir íkveikju vegna gruns um að hafa kveikt Old Trails-skógareldinn.
Samkvæmt lögreglunni í Spokane er Farinacci í haldi lögreglu gegn tryggingu sem nemur einni milljón bandaríkjadala.
Rannsókn lögreglu á Farinacci hófst á laugardag þegar vitni greindi frá því að hafa séð mann á þeim stað sem eldurinn nærri Old Trails kviknaði. Vitnið sagði manninn hafa verið að beygja sig niður við gras þegar það sá til hans. Skömmu síðar tók reyk að stíga upp á sömu slóðum.
Lögreglumenn á vettvangi höfðu samband við Farinacci skömmu eftir að eldurinn kviknaði. Hann var handtekinn og færður til yfirheyrslu en síðar sleppt. Við nánari athugun lögreglu og húsleit heima hjá Farinacci fundust vatnsheldar eldspýtur og kveikjari. Var hann þá handtekinn á ný og færður í gæsluvarðhald.
Eldarnir gætu logað í margar vikur
Þúsundir slökkviliðsmanna á vesturströnd Bandaríkjanna berjast nú við að ná tökum á 17 skógareldum víðs vegar um Washington-ríki. Þrír stórir eldar í Spokane, þar á meðal í Old Trails, hafa lagt heilu íbúðahverfin í rúst. Samkvæmt aðstoðarslökkviliðsstjóra í umdæminu gætu liðið margar vikur þangað til tekist hefur að slökkva alla eldana.
Rúmlega 106 þúsund hektarar hafa orðið eldunum að bráð. Um 700 mannvirki hafa eyðilagst og tæplega 65.000 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín.
Yfirvöld segja skógareldatíð í norðvesturhluta Bandaríkjanna ekki hafa verið verri í þrjá áratugi. Reyk frá eldunum leggur yfir nær allt Washington-ríki og von er á því að hann verði áfram næstu daga. Spáð er hægum vindum það sem eftir lifir vikunnar sem gætu dregið úr útbreiðslu eldanna en hún er þó enn mikil vegna hækkandi hitastigs og þurrka.
14 manns hafa ekki látið vita af sér
Bob Fergusson, ríkisstjóri Washington, segir að unnið sé að því að hafa uppi á öllum sem hringdu eftir aðstoð þegar eldarnir breiddust um íbúðahverfi Spokane. Enn hefur ekki tekist að ná sambandi við 14 manns.
Ferguson segist vongóður um að fólkið sé heilt á húfi. Sumir gætu verið komnir í öruggt skjól eða með rafmagnslausa síma. Hann ítrekaði að engin dauðsföll hefðu verið staðfest.