Fyrstu gestir Kristjáns eru þau Jón Pétur Zimsen þingmaður og Kolfinna Jóhannesdóttir, skólastjóri Kvennaskólans. Þau ætla að ræða samræmi í einkunnagjöf grunnskóla en í vikunni kom í ljós að í raun er mikið ósamræmi.
Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu, er næstur á dagskrá og ætlar hann að fara yfir nýtt innviðafélag sem hefur verið stofnsett á Íslandi. Horft er til Færeyja af þessu tilefni þar sem borað hefur verið fyrir fjölda jarðganga undanfarin ár á meðan lítið gerist á Íslandi. Ólafur fer yfir afstöðu lífeyrissjóða sem fjárfesta í stórum innviðaverkefnum á Íslandi.
Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur og stjórnarkona í Heimssýn, hefur gagnrýnt harðlega hugmyndir um að matvælaverð lækki verulega á Íslandi við inngöngu í Evrópusambandið. Hún telur þær hugmyndir byggðar á óskhyggju.
Að lokum mætir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, og ætlar hann að ræða hagræðingaraðgerðir meirihlutans. Hann ætlar að fara yfir hver viðhorf stjórnarandstöðunnar eru til þessara þróunar.