Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum - Vísir
24.04.2026 16:17:48👁️ 0 lesið
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu en þar er Eva Margrét spurð um hvernig hún hyggist láta til sín taka á nýjum vettvangi. „Þeir sem eru ekki í fylkingarbrjósti þessara breytinga munu verða undir í samkeppninni. Það eru ansi mörg ónýtt tækifæri á sviðum lögfræðinnar sem við ætlum að nýta okkur, viðskiptavinum stofunnar til heilla.“
Mun leiða umfangsmikla endurskipulagningu
ESJA Legal er í grunninn fjölskyldufyrirtæki og var fyrirtækið stofnað af eiginmanni Evu, Ómari R. Valdimarssyni hæstaréttarlögmanni, árið 2009. Í tilkynningunni segir að Eva Margrét taki nú við taumunum hjá ESJA Legal ehf. en hún er löggildur fasteignasali.Hún kemur til fyrirtækisins með fjölbreytta reynslu í viðskiptum og markaðsmálum og hyggst nýta bakgrunn sinn til þess að innleiða frekari tæknilausnir í rekstri félagsins, til þess að bæta ferla, auka skilvirkni og styrkja tekjugrunninn enn frekar.Ómar hefur fulla trú á sinni konu, að hún muni leiða breytingar sem ríma við tæknibreytingar sem nú eru yfir og allt um kring.aðsend Eva Margrét mun leiða umfangsmikla endurskipulagningu á innri ferlum stofunnar, meðal annars með því að nýta forritunarhæfileika sína til þess að innleiða sjálfvirknivæðingu á lykilsviðum rekstrarins, meðal annars með liðsinni gervigreindar. Markmiðið að hennar sögn er að lækka rekstrarkostnað og breikka tekjugrunn fyrirtækisins með tæknilausnum.
Engin betur til þess fallin að taka við ESJU
Eins og áður sagði er Eva Margrét eiginkona Ómars R. Valdimarssonar lögmanns. Fyrstu árin snerist reksturinn aðallega um fjölmiðlaráðgjöf og almannatengsl en fókusinn var færður yfir á lögfræði árið 2013 sem er í dag ær og kýr stofunnar. Ómar mun halda áfram starfi sínu hjá stofunni sem hæstaréttarlögmaður og sinnir hann ráðgjöf og hagsmunagæslu bæði á sviðum stjórnsýslunnar og fyrir dómstólum.„Þær breytingar sem eru að verða á flestum sviðum samfélagsins um þessar mundir kalla á að við fáum manneskju í brúnna sem getur helgað sig þessu alfarið,“ segir Ómar og vísar til þeirra tækniframfara sem eru að breyta samfélagsmyndinni með umfangsmeiri hætti en lengi hefur sést.„Ef maður ætlar ekki að missa af þessari lest er eins gott að gæta þess að hvert skref fram á við sé úthugsað og tekið með faglegum og skipulögðum hætti. Engin mun geta gert það betur en Eva Margrét,“ segir Ómar sem hefur fulla trú á sinni konu.