Um fátt hefur verið fjallað meira í fréttum á heimsvísu undanfarna daga en þegar tugir þúsunda streymdu frá yfirráðasvæði Marokkó yfir til spænsku hólmlendunnar Ceuta, sem er á Norðurtanga Afríku hinum meginn við Miðjarðarhafið, frá meginlandi Spánar. Flestir þessara einstaklinga munu hafa verið sendir til baka. Sitt hefur hverjum sýnst um þessa atburði og eins og oft vill verða þegar hælisleitendur koma við sögu þá hefur töluvert af falsfréttum farið á kreik. Ljóst er þó að atburðirnir hafa skapað uppnám í samskiptum Spánar við önnur Evrópuríki.
Egill segir alveg ljóst hver sannleikurinn um Ceuta sé - „Þetta var notað til að skapa hræðslu og tortryggni“