„Ég var settur út úr ráðherradómnum“
Guðmundur Ingi Kristinsson segir úrsögn sína úr Flokki fólksins tengjast því hvernig staðið var að brotthvarfi hans úr ráðherraembætti meðan hann glímdi við alvarleg veikindi.
Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður utan flokka og fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, segist hafa verið „settur út úr ráðherradómnum“ og að aðferðin sem beitt var við það hafi átt stóran þátt í því að hann sagði sig síðar úr Flokki fólksins.
Guðmundur Ingi ræddi brotthvarfið í Morgunvakt Rásar 1 í morgun. Hann sagðist ekki ósáttur við það eitt að hafa hætt sem ráðherra heldur hvernig staðið hefði verið að málum.
„Það voru röð atvika sem urðu þess valdandi og ég skal alveg viðurkenna það að það hefur með það að gera að ég var settur út úr ráðherradómnum,“ sagði Guðmundur Ingi. „Ekki vegna þess að ég var settur út úr ráðuneytinu heldur þeirri aðferð sem var beitt.“
Hann vildi ekki útskýra nánar hvað hefði gerst en sagði málið hafa haft áhrif á fjölskyldu sína.
„Þegar eitthvað beinist að mér þá er það í lagi en þegar það er komið út …