Dularfullur fjölskylduharmleikur á Edition

Dularfullur fjölskylduharmleikur á Edition

Dularfullur fjölskylduharmleikur á Edition

Ming Ting Mancel var í dag ákærð fyrir manndráp á þrítugri dóttur sinni í samverknaði við eiginmann sinn. Hún er ekki ákærð fyrir aðkomu að andláti eiginmanns síns, Emerics Mancel. Eiginmaður hennar og dóttir létust á Edition-hótelinu 14. júní 2025.

Ming Ting Mancel var handtekin á Edition-hótelinu í júní 2025 eftir að starfsmaður hótelsins kom að óhugnanlegum aðstæðum á herbergi fjölskyldunnar.

Málið er án fordæma og rannsókn lögreglu hefur teygt sig til fjölda landa. Mörgum spurningum hefur verið ósvarað um fjölskylduna til þessa, meðal annars hvaða fólk þetta var sem endaði lífið með þessum hætti, á einu dýrasta hóteli Reykjavíkur, sama dag og þau áttu pantað far aftur heim til Írlands.

Ítarlega er fjallað um málið í þættinum Sögum úr raunveruleikanum á Rás 1. Þar er meðal annars rætt lögmann ættingja fjölskyldunnar.

Erfitt að finna upplýsingar um fjölskylduna

Fjölskyldufaðirinn hét Emeric Mancel og var 57 ára þegar hann lést. Hann var af frönskum ættum en bjó lengst af í Nýju-Kaledóníu. Það er eyjaklasi í Suður-Kyrrahafi, ekki langt frá ströndum Ástralíu, en tilheyrir Frakklandi. Þar kynntist Emeric eiginkonu sinni, Ming Ting Mancel, sem er af kínverskum ættum. Hjónin eignuðust saman dótturina Catherine Mancel en hún hefði orðið þrítug árið sem hún lést.

Það er ekki auðvelt að komast að upplýsingum um fjölskylduna og ástæður þess að Emeric og Catherine létust með þessum hætti á hótelherbergi í ókunnu landi. Nánast engin stafræn fótspor er að finna eftir þau.

Í skýrslutöku sagði konan að fjölskyldan hefði ætlað að fremja sjálfsvíg saman. Hún sagði eiginmann sinn hafa ætlað að stinga sjálfan sig í hjartað en loks beðið hana um að gera það og hún hafi orðið við þeirri ósk. Í næstu skýrslutöku nokkrum dögum síðar breytti konan framburði sínum, þá neitaði hún því að hafa stungið þau og sagði eiginmanninn fyrst hafa stungið dótturina, svo hana sjálfa. Það hafi verið hann sem kom með hnífa til landsins og ákveðið stað og stund verknaðarins.

Faðirinn með svart belti í bardagalist

Á vefmiðli í Nýju-Kaledóníu má finna grein frá árinu 2014 þar sem sagt var frá því að Emeric Mancel hefði hlotið svart belti í japanskri skylmingaíþrótt sem kallast kendó. Í kendó er barist með sverðum, í anda japanskra samúræja, og reynt að skora stig með nákvæmum höggum á ákveðna hluta líkamans.

Emeric hlaut svarta beltið á móti sem fram fór í Ástralíu. Við sama tilefni hlaut Catherine, dóttir hans, sérstök hvatningarverðlaun fyrir iðkun sína. Vefmiðillinn birtir ljósmynd af feðginunum og öðrum keppendum á mótinu í svörtum kuflum með sverð. Það er eina ljósmyndin sem fundist hefur á netinu af fjölskylduföðurnum.

Þótt lítið sé vitað um lifnaðarhætti fjölskyldunnar kom fljótlega í ljós við lögreglurannsókn málsins að heilsu Emeric hafði farið verulega hrakandi.

Maðurinn átti í deilum um arf við systur sína

Nýlega birtist umfjöllun um Edition-málið á vefmiðli í Nýju-Kaledóníu. Þar kom fram að systir Emerics Mancel, Francoise Diuex, hefði sínar efasemdir um að jafnræði hefði ríkt á milli þeirra hjóna, Emerics og Ming.

Systirin lýsti Emeric sem afar stjórnsömum manni. Hún hefði sjálf haft samband við lögregluna á Íslandi til að koma því á framfæri. Lögmaður hennar, Philippe Olivier, veitti viðtal fyrir hennar hönd um samskipti systkinanna á undanförnum árum.

Erjur komu upp á milli systkinanna eftir fráfall foreldra þeirra. Þau hafa á undanförnum árum átt í hörðum deilum um fjölskylduarfinn. Deilurnar urðu að dómsmáli, fyrst í Nýju Kaledóníu og svo fyrir áfrýjunardómstóli á Nýja Sjálandi. 

Fjórum dögum eftir andlát Emrics heimilaði dómstóll í Nýja Sjálandi að frysta eignir og fjármuni Emeric Mancel. Dómurinn taldi systur hans hafa fært sannfærandi rök fyrir sínu máli og lagt fram gögn sem bentu til þess að Emeric hefði í áraraðir fært peninga móður þeirra inn á sína reikninga. Þannig hefði hann gengið á arf hennar.

Voru eins konar draugar að sögn lögreglu

Fjölskyldan leigði dýra lúxusíbúð í Dyflinni í tæpan áratug. Í byggingunni búa aðallega útlendingar sem vinna í borginni, og þar eru að auki skrifstofur, kaffihús og snyrtistofur. Hlaðvarpsritstjórn írska ríkismiðilsins RTE reyndi að afla upplýsinga um Mancel-fjölskylduna með því að ræða við fólk í nágrenninu. Nágrannarnir könnuðust lítið eða ekkert við fjölskylduna.

Á netinu hafi dóttirin Catherine verið skráð sem starfsmaður Airbnb, en skrifstofur þeirra voru skammt frá heimili fjölskyldunnar. Upplýsingar um starfsferil Catherine Mancel er að finna á síðu hennar á samfélagsmiðlinum LinkedIn. Þar er nokkuð ítarleg ferilskrá hennar og samkvæmt henni hafði Catherine starfað hjá Airbnb í nokkra mánuði.

Óljóst hvort dóttirin hafi ætlað sér að deyja

Sennilega var Catherine þó í atvinnuleit því á síðunni skrifar hún að hún sé að leita að sölustarfi hjá tæknifyrirtæki. Hún virðist hafa gegnt ýmsum störfum í upplýsingatæknigeiranum og hafa lokið diplómunámi í hótelrekstri frá bandarískum skóla árið 2016.

Af þessum skráða starfsferli hennar virðist hún hafa verið fær um að sjá um sig sjálf og vinna fyrir sér. Af linkedIn-síðu hennar má ráða að hún hafi ætlað sér aðra hluti en að láta lífið á hóteli í Reykjavík í júní 2025. Vikurnar áður en hún kom til Íslands lauk Catherine fjölmörgum netnámskeiðum til að efla færni sína, meðal annars í tímastjórnun, verkefnastjórnun og öðrum starfstengdum þáttum.

Það vekur því upp spurningar um hvers vegna tæplega þrítug kona með fjölmörg spil á hendi ætti að hafa viljað binda enda á líf sitt.

En það sem vekur mesta athygli á LinkedIn-síðu Cathrine Mancel er ljósmynd sem hún hefur gert að burðarmynd á þessum atvinnutengda samfélagsmiðli. Á myndinni er grænn prjónaður bangsi, sambærilegur bangsi og var við hlið hennar þegar hún fannst stungin til bana á Edition-hótelinu í Reykjavík.

Heimildir fréttastofu herma að lögregla hafi grun um að Catherine hafi mögulega glímt við einhvers konar skerðingu eða mótast af mikilli einangrun.

Segir þau öll hafa viljað deyja vegna erfiðra veikinda föðurins

Ming Mancel greindi lögreglu frá því að ástæður þess að fjölskyldan hefði viljað deyja hefðu meðal annars verið erfið veikindi eiginmanns hennar og deilur um erfðamál, sem hefðu reynt mjög á þau öll. Hún sagði þau hjónin hafa gefið dóttur þeirra fullt frelsi til að ákveða sín eigin örlög og hún hafi verið ákveðin í að deyja með foreldrum sínum. Loks hafi eiginmaður hennar ákveðið að stundin væri runnin upp.

Fjölskyldan snæddi sína síðustu kvöldmáltíð á sushi-stað í Tryggvagötu. Þaðan fór hún fótgangandi að Edition-hótelinu þar sem þau Emeric og Catherine létust um nóttina.

Systir Emerics er furðu lostin yfir atburðarásinni. Lögmaður hennar segir flókið að fylgjast með framvindu málsins á Íslandi og þau umbjóðandi hans fái hvergi skýr svör. Málið hafi vakið miklar og sárar tilfinningar og það sé íþyngjandi fyrir umbjóðanda hans að vita af mágkonu sinni frjálsri í Reykjavík.

Móðirin fer daglega að leiði fjölskyldunnar

Ómar Örn Bjarnþórsson, verjandi Ming Mancel, segir að hún hafi verið í sérstakri stöðu á undanförnum mánuðum, algjörlega peningalaus og í farbanni frá Íslandi.

Hann segir að jafnvel þó að umbjóðanda hans, Ming Mancel, takist að sýna fram á að fjölskyldan hafi öll haft vilja til að deyja þá geti það varðað við lög að aðstoða fólk við að svipta sig lífi. 

Það vakti athygli nokkurra gesta í Fossvogskirkjugarði þegar kona kom í fylgd lögreglumanna til að vera við jarðsetningu tveggja duftkerja.

Aðeins konan, lögreglumennirnir, prestur og útfararstjóri voru viðstödd athöfnina. Undanfarna sjö mánuði hefur hún svo vanið komur sínar daglega að leiði þeirra Emerics og Catherine í kirkjugarðinum.

#dularfullur #edition #fjölskylduharmleikur


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-04-27-dularfullur-fjolskylduharmleikur-a-edition-473767

📰 Aðrar fréttir

Brazil elections: Lula secures fourth term after dramatic comeback
📅 26.10.2026 👁️ 0
Brazil elections: Lula secures fourth term after dramatic comeback
President Lula has pulled of a surprise win, but he will face a hostile Congress and a polarised country,
Lula forseti í fjórða sinn
📅 26.10.2026 👁️ 0
Lula forseti í fjórða sinn
Luiz Inacio Lula da Silva, sitjandi forseti og leiðtogi Verkamannaflokksins, er sigurvegari forsetakosninganna í Brasilíu, en síðari umferð kosningann...
Healey’s Budget needs to sustain the stronger economy through gathering clouds
📅 26.10.2026 👁️ 0
Healey’s Budget needs to sustain the stronger economy through gathering clouds
The economic is positive now but come January things could become trickier for the Labour government
Umhverfisspjöll Google vekja reiði í Finnlandi
📅 26.10.2026 👁️ 0
Umhverfisspjöll Google vekja reiði í Finnlandi
Vessandi forarsvað þar sem áður stóðu 250.000 tréSkammt utan við smábæinn Muhos í norðanverðu Finnlandi, spottakorn frá Oulu, er um 330 hektara, vandl...
Machado komin aftur til heimalandsins
📅 26.10.2026 👁️ 0
Machado komin aftur til heimalandsins
Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela og handhafi friðarverðlauna Nóbels, María Corina Machado, er komin til heimalandsins eftir tæpt ár í útlegð....
Stukku fram af kletti ofan í Goða­foss - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Stukku fram af kletti ofan í Goða­foss - Vísir
Í texta við myndbandið segir að atvikið hafi átt sér stað 20. september síðastliðinn og að piltarnir hafi stokkið úr um 40 feta hæð, eða rúmlega tólf ...
Malbiksviðgerðir á Arnarnesvegi
📅 25.10.2026 👁️ 3
Malbiksviðgerðir á Arnarnesvegi
Stefnt er að malbiksviðgerðum á Arnarnesvegi mánudaginn 26. október, milli klukkan 10:00 og 16:00. Búast má við einhverjum töfum á umferð á meðan á fr...
Funding set to double for plan to get rough sleepers off streets by Christmas
📅 25.10.2026 👁️ 3
Funding set to double for plan to get rough sleepers off streets by Christmas
Burnham made ending rough sleeping his first pledge when entering Downing Street in July.
„Noregur sökkar“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
„Noregur sökkar“ - Vísir
Trump er tíðrætt um einmitt það og ljóst að norska þjóðin hefur ekki verið í miklu uppáhaldi hjá Bandaríkjaforseta frá því að tilkynnt var um að Nóbel...
Deeply divided Israel braces for pivotal election
📅 25.10.2026 👁️ 3
Deeply divided Israel braces for pivotal election
After three years of regional war, this is a battle Israel always knew was coming, writes Lucy Williamson.
Spotify uploads Irish lyrics for Dolly Parton's Welsh Jolene version
📅 25.10.2026 👁️ 2
Spotify uploads Irish lyrics for Dolly Parton's Welsh Jolene version
The single is the second posthumous release from Parton - who was of Welsh descent.
Trump eftir Nóbelsverðlaunin: „Noregur er í raun orðinn skítaland“
📅 25.10.2026 👁️ 3
Trump eftir Nóbelsverðlaunin: „Noregur er í raun orðinn skítaland“
Donald Trump Bandaríkjaforseti kallaði Noreg skítaland á kosningafundi í McMorran Place í Port Huron í Michigan nú í dag, sunnudaginn 25. október. Han...
Vučić játar ó­sigur - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Vučić játar ó­sigur - Vísir
Serbneski framfaraflokkurinn undir forystu Vučić hefur farið með stjórn landsins í hálfan annan áratug og Vučić sjálfur flakkað á milli embættis forsæ...
Suðurlandsvegi lokað við Rauðavatn annað kvöld
📅 25.10.2026 👁️ 3
Suðurlandsvegi lokað við Rauðavatn annað kvöld
Kafla af Suðurlandsvegi verður lokað á annað kvöld, frá klukkan átta til miðnættis. Þetta kemur fram á síðu Vegagerðarinnar.Stefnt er að malbiksviðger...
Manchester United & Michael Carrick: Air of inevitability around manager's future but owners' problems far bigger
📅 25.10.2026 👁️ 3
Manchester United & Michael Carrick: Air of inevitability around manager's future but owners' problems far bigger
Manchester United's fans sang their support for Michael Carrick during the 3-0 home defeat by Bournemouth, but voiced their opposition to virtually ev...
Segir Við­reisn í krísu og úti­lokar ekki að hætta stuðningi - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Segir Við­reisn í krísu og úti­lokar ekki að hætta stuðningi - Vísir
Jón sagði sig úr þingflokki Viðreisnar fyrr í mánuðinum en er áfram meðlimur í flokknum. Hann gerði skriflegt samkomulag við þingflokkinn um að styðja...
Serbia's Vučić concedes election defeat to student-led protest movement
📅 25.10.2026 👁️ 3
Serbia's Vučić concedes election defeat to student-led protest movement
The country's populist right-wing leader of 12 years says it is "clear" hisb Serbian Progressive Party (SNS) has lost.
Serbia's veteran ruler Vučić concedes election to student-led protest movement
📅 25.10.2026 👁️ 3
Serbia's veteran ruler Vučić concedes election to student-led protest movement
The populist right-wing leader of 12 years says it is "clear" his party has lost the vote billed as a referendum on the country's future.
Vučić viðurkennir ósigur í Serbíu
📅 25.10.2026 👁️ 3
Vučić viðurkennir ósigur í Serbíu
Aleksandar Vučić, fyrrverandi forseti Serbíu, viðurkennir ósigur í þingkosningunum sem fóru fram í landinu í dag. Hann segir fjöldahreyfingu stúdenta ...
Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić - Vísir
Kjörstöðum var lokað klukkan átta að staðartíma í kvöld. Klukkustund fyrr höfðu 67,6 prósent kjósenda þegar greitt atkvæði samkvæmt umfjöllun Reuters....
Gljúfrabúi veitir Seljalandsfossi samkeppni
📅 25.10.2026 👁️ 3
Gljúfrabúi veitir Seljalandsfossi samkeppni
Fossinn Gljúfrabúi nýtur vaxandi vinsælda meðal erlendra ferðamanna, en áður var fossinn vel falin perla sem fáir utan landsteinanna vissu af.Göngum u...
Ekki síðasti alvarlegi netöryggisgallinn sem getur valdið meiriháttar tjóni
📅 25.10.2026 👁️ 3
Ekki síðasti alvarlegi netöryggisgallinn sem getur valdið meiriháttar tjóni
Fleiri alvarlegir öryggisgallar, eins og sá sem varað var við í PHP-forritunarmálinu í vikunni, eiga eftir að koma í ljós. Þetta segir Ingólfur Andri ...
Frambjóðendur í Brasilíu vilja halda kjörstöðum opnum lengur
📅 25.10.2026 👁️ 4
Frambjóðendur í Brasilíu vilja halda kjörstöðum opnum lengur
Kjörstöðum í Brasilíu hefur verið lokað. Önnur umferð forsetakosninga fór fram í landinu í dag.Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum eru frambjóðendurnir, ...
Kjörstaðir opnir lengur í Brasilíu
📅 25.10.2026 👁️ 3
Kjörstaðir opnir lengur í Brasilíu
Kjörstöðum í Brasilíu verður haldið opnum tveimur klukkustundum lengur en til stóð. Þeir áttu að loka klukkan fimm að staðartíma en verða opnir til kl...
50+: Að hætta að vera þjónustu­mið­stöð full­orðinna barna - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
50+: Að hætta að vera þjónustu­mið­stöð full­orðinna barna - Vísir
En þetta tveggja áratuga starf sem hefur falið í sér að vera framkvæmdastjóri, skutlari, fjármálastjóri, tilfinningalegur öryggispúði og svo mætti len...
Garðfuglakönnun yfir vetrarmánuðina hafin
📅 25.10.2026 👁️ 4
Garðfuglakönnun yfir vetrarmánuðina hafin
Árleg garðfuglakönnun félagsins Fuglaverndar hófst í dag og stendur til 24. apríl. Kannanir hófust 1994 og tilgangur þeirra er að afla upplýsinga um f...
Leikur á hnífs­egg í Brasilíu - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Leikur á hnífs­egg í Brasilíu - Vísir
Kosningarnar eru hnífjafnar samkvæmt síðustu skoðanakönnunum og fara fram í skugga mikillar pólitískrar skautunar sem birtist einna skýrast í því að f...
Fagur söngur fljótandi dívu dró marga að Reykjavíkurtjörn
📅 25.10.2026 👁️ 4
Fagur söngur fljótandi dívu dró marga að Reykjavíkurtjörn
Hátíðin var sett á kaffihúsi í miðbænum í dag. Því næst var gengið á milli staða og viðstaddir fengu að njóta óperu á hverjum stað. Óperudagar standa ...
Kjörstöðum lokað í Serbíu
📅 25.10.2026 👁️ 4
Kjörstöðum lokað í Serbíu
Kjörstöðum í Serbíu hefur verið lokað og búast má við fyrstu tölum eftir um tvær klukkustundir. Þingkosningar voru í landinu í dag og allt bendir til ...
Er hægt að treysta aftur eftir fram­hjá­hald? - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Er hægt að treysta aftur eftir fram­hjá­hald? - Vísir
Sæl og takk fyrir góða og mikilvæga spurningu. Það þarf ekki endilega að rjúfa öll tengsl við manneskjuna sem framhjáhaldið átti sér stað með til þess...
Eðlilegt að fólki misbjóði dómur Landsréttar
📅 25.10.2026 👁️ 4
Eðlilegt að fólki misbjóði dómur Landsréttar
Meira en átta þúsund undirskriftir hafa safnast á undirskriftalista þar sem þess er krafist að gerð verði óháð úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundi...
Letter making claims about Meghan's father written by his ex-wife, BBC understands
📅 25.10.2026 👁️ 4
Letter making claims about Meghan's father written by his ex-wife, BBC understands
Roslyn Loveless, who has since died, divorced Meghan's father in 1975. Meghan said she had been informed about the "disturbing allegations" in 2018.
Long queues after power surge at Stansted Airport
📅 25.10.2026 👁️ 4
Long queues after power surge at Stansted Airport
A passenger says she was trapped in a corridor at the airport for 90 minutes.
Stjórnar­skráin trompi alltaf bókun 35 - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Stjórnar­skráin trompi alltaf bókun 35 - Vísir
„[Bókun 35] verður aldrei beitt þannig að hún víki til hliðar stjórnarskránni. Stjórnarskráin mun alltaf trompa hana,“ sagði Hafsteinn í Sprengisandi ...
Mikill léttir að innviðaráðherra ætli að bæta fjármagni í Loftbrú
📅 25.10.2026 👁️ 4
Mikill léttir að innviðaráðherra ætli að bæta fjármagni í Loftbrú
Þingmaður Samfylkingar í Norðausturkjördæmi segir mikinn létti að innviðaráðherra ætli að bæta við fjármagni í Loftbrú. Sú upphæð sem hann hafi kynnt ...
Kartöflugeymslu breytt í lista- og menningarmiðstöð á Selfossi
📅 25.10.2026 👁️ 4
Kartöflugeymslu breytt í lista- og menningarmiðstöð á Selfossi
Kartöflugeymslan var tekin í notkun 1952 og var notuð í tugi ára. Þar gátu íbúar geymt kartöflur sínar yfir veturinn. Húsið, sem kallast í dag Langhús...
Board of Deputies of British Jews declares Greens to be racist party
📅 25.10.2026 👁️ 4
Board of Deputies of British Jews declares Greens to be racist party
The Jewish body's vote comes in response to the Green Party passing a "Zionism is racism" policy motion.
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna
📅 25.10.2026 👁️ 4
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna Fréttin25. október 2026Inn...
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu
📅 25.10.2026 👁️ 4
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu Úkra­ínskur varn­ar­mála­ráð­herra segir teng­ing­una nú stöðuga. Elon Musk segir að her lands­ins...
Machado snýr heim eftir nær árs út­legð - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Machado snýr heim eftir nær árs út­legð - Vísir
„Ég er hér. Með ykkur,“ skrifaði Machado á samfélagsmiðlum í dag. Bandamaður hennar, Edmundo González Urrutia, sem bauð sig fram gegn Nicolás Maduro í...
Voru mannfórnir hluti af útförum egypskra konunga?
📅 25.10.2026 👁️ 4
Voru mannfórnir hluti af útförum egypskra konunga?
Lengi hefur verið deilt um hvort Egyptar hafi stundað mannfórnir við útfarir fyrstu konunga sinna.Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að þjón...
Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell
📅 25.10.2026 👁️ 3
Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell
Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell Dularfullt geimfarGeimfar sem sást í vesturhluta Bandaríkjanna á þessu ári Mynd: Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjan...
Linda Dröfn og Tótla sjóð­heitt par - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Linda Dröfn og Tótla sjóð­heitt par - Vísir
Linda Dröfn, sem er 51 árs, hefur stýrt Kvennaathvarfinu í rúm fjögur ár en nýtt glæsilegt húsnæði athvarfsins var opnað fyrir nokkrum vikum. Í desemb...
Man killed by falling tree as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
📅 25.10.2026 👁️ 4
Man killed by falling tree as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
An amber wind warning will remain until Sunday evening as severe weather continues to batter the UK.
Two men killed by falling trees as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
📅 25.10.2026 👁️ 3
Two men killed by falling trees as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
An amber wind warning has now expired after severe weather sweeps across the UK.
Hefur ekki áhyggjur af áhrifum á löggæslu á landsbyggðinni
📅 25.10.2026 👁️ 3
Hefur ekki áhyggjur af áhrifum á löggæslu á landsbyggðinni
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi lögreglumaður, segir viðbúið að skiptar skoðanir séu á fyrirætlunum. Gagnrýnisraddirnar séu þó ek...
Manchester United - Michael Carrick future as manager under major threat
📅 25.10.2026 👁️ 4
Manchester United - Michael Carrick future as manager under major threat
Michael Carrick's future as Manchester United manager is under major threat following the home loss to Bournemouth on Sunday.
Hvað á að gera við graskersgumsið?
📅 25.10.2026 👁️ 3
Hvað á að gera við graskersgumsið?
Senn líður að hrekkjavöku sem vinnur sér sífellt sterkari sess sem tyllidagur hér á landi. Grasker og annar varningur tengdur hátíðinni er áberandi í ...
Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í inn­viði - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í inn­viði - Vísir
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins úr Suðurkjördæmi, segist deila áhyggjum íbúa á svæðinu vegna gjaldtöku á ferðamannastöðum. Staðrey...
Opposition leader María Machado returns to Venezuela
📅 25.10.2026 👁️ 4
Opposition leader María Machado returns to Venezuela
Machado had left the country just a month before the US government seized Venezuelan President Nicolás Maduro.