Tveggja ára drengur sem leitað var að í Svíþjóð í gær er fundinn heill á húfi. Hann var nokkuð kaldur en við góða heilsu þegar hann fannst samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Drengurinn hvarf við sveitabæ stuttu fyrir hádegi í gærdag í Nyåker í sveitarfélaginu Nordmaling í Svíþjóð.
Umfangsmikil leit var gerð að drengnum og tóku björgunarsveitir, lögregla með leitarhunda og hermenn þátt í leitinni.
Lögreglan hefur ekki gefið upp hvort hvarf drengsins teljist saknæmt.