Hópur fólks hratt af stað herferð í New York í Bandaríkjunum þar sem hvatt var til þess að Met Gala yrði sniðgenginn. Met Gala er árlegur viðburður sem er haldinn í Metropolitan-listasafninu og oft kallað stærsta kvöld tískuheimsins.
Milljarðamæringurinn Jeff Bezos og eiginkona hans Lauren Sanchez eru fjárhagslegir bakhjarlar í ár og það hefur farið öfugt ofan í marga.
Bezos er einn af ríkustu mönnum heims. Hann er stofnandi Amazon og var forstjóri þess til ársins 2021. Amazon var eitt fyrsta fyrirtækið í heiminum til að selja vörur á netinu.
Fyrirtækið, og Bezos sjálfur, hefur verið gagnrýnt fyrir slæman aðbúnað starfsfólks. Vísun í það má finna á einu af veggspjöldunum sem hafa verið hengd upp í New York.
Þar má sjá plastflösku með gulum vökva standa á rauðum dregli og fyrir neðan hana er skrifað „í boði misnotkunar á vinnuafli.“ Fregnir bárust af því að starfsfólk Amazon hefði þurft að pissa í flöskur því það hefði ekki fengið pásu til þess að fara á klósettið.
Vinfengi Bezos við Donald Trump Bandaríkjaforseta er líka þyrnir í augum sumra. „Amazon knýr ICE áfram,“ stendur á einu veggspjaldinu og mynd af Bezos í vesti merktu innflytjendastofnun Bandaríkjanna ICE. ICE hefur farið fram af hörku gegn innflytjendum síðustu misseri, líkt og Trump lofaði að yrði gert.
Þess má geta að Amazon greiddi 75 milljónir dollara fyrir heimildarmyndina Melaniu, sem fjallar um Melaniu Trump forsetafrú en myndin hefur hlotið heldur laka dóma.
Mamdani mætir ekki
Einn þeirra sem ætla ekki að mæta er borgarstjóri New York, Zohran Mamdani. Mamdani segir það ekki samræmast sínum forgangsverkefnum í pólitík auk þess sem hann hefur barist fyrir aukinni skattheimtu milljónamæringa.
Boð á viðburðinn er eftirsótt en ekki hver sem er kemst á gestalistann. Anna Wintour, ritstjóri tískutímaritsins Vogue, stýrir honum og býður listamönnum, hönnuðum og öðrum frægum einstaklingum hvert ár.
Einn miði kostar milljónir
Og þótt fólk fái boð þarf það yfirleitt að greiða fyrir miðann dýrum dómum. Samkvæmt BBC kostar einn miði 75.000 dollara eða um 9,5 milljónir króna. Viljir þú bóka heilt borð kostar það um 350.000 dollara eða rúmar 44 milljónir króna.
Í fyrra söfnuðust 31 milljón dollara fyrir Metropolitian-safnið. Hvert ár er nýtt þema á viðburðinum og sérstakir gestgjafar. Gestgjafarnir í ár eru Beyoncé, Nicole Kidman og Venus Williams. Þemað er í ár búningalist (e. Costume Art) og gestir beðnir að klæða sig eftir einkennisorðunum; tíska er list.