Dorrit Moussaieff fyrrverandi forsetafrú segir Evrópusambandið þurfa á Íslandi að halda, jafnvel meira en Ísland þarf á Evrópusambandinu að halda. Þetta segir Dorrit í aðsendri grein á Vísi.
Hún segir það að ráðast ekki til samningaviðræðna ígildi þess að gefast upp áður en leikur er hafinn.
Dorrit segist hafa alist upp með föður sínum á mörkuðum í Jerúsalem. Þar hafi hún lært að semja við fólk. „Ég lærði það snemma að hægt er að semja um allt í viðskiptum. Þú byrjar á því að biðja um allt sem þú vilt fá.“
„Við þurfum að hlusta og sjá hvað stendur til boða. Svo getum við gert okkar eigin kröfur, ef kröfum okkar er mætt þá getum við tekið ákvörðun,“ skrifar Dorrit
Í niðurlagi greinar sinnar vísar Dorrit til Brexit, þegar Bretar gengu úr Evrópusambandinu, og skrifar: „Við verðum að læra af mistökum Bretlands.“
Fyrr í sumar voru fluttar fréttir af mögulegum skilnaði Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta lýðveldisins, og Dorritar. Hún hefur hvorki getað staðfest né neitað að þau væru að skilja en lagði ríka áherslu á að tengsl hennar við landið myndu ekki breytast.
Ólafur hefur verið framarlega í starfi hreyfingarinnar Áfram Ísland! sem berst fyrir því að Íslendingar hafni áframhaldandi aðildarviðræðum.