Dauðsfall erlendis kveikir spurningar um réttindi íslenskra sjúklinga

Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir upplýsingum frá heilbrigðisráðuneytinu um hvernig staðið er að upplýsingagjöf og leiðbeiningum til sjúklinga sem þurfa að sækja heilbrigðisþjónustu erlendis að frumkvæði íslenskra heilbrigðisstofnana.
Tilefni fyrirspurnarinnar er kvörtun föður sjúklings sem lést á sjúkrahúsi erlendis. Kvörtunin laut að stjórnsýslu Sjúkratrygginga Íslands og viðbrögðum heilbrigðisráðuneytisins þegar athugasemdir vegna málsins voru bornar upp.
Meðferð umboðsmanns á þeirri tilteknu kvörtun er lokið en um er að ræða mál númer 471 árið 2025 en því lauk í september á þessu ári.
Málið varð hins vegar til þess að umboðsmaður taldi ástæðu til að afla frekari upplýsinga um hvernig sjúklingum og eftir atvikum aðstandendum þeirra er leiðbeint þegar heilbrigðisþjónusta þarf að fara fram utan Íslands. Í erindi umboðsmanns er meðal annars vísað til laga um réttindi sjúklinga, þar sem kveðið er á um að ráðuneytið skuli sjá til þess að fyrir liggi upplýsingar um réttindi sjúklinga, sjúklingafélög og sjúkratryggingar.
Heilbrigðisráðuneytið er beðið um að upplýsa hversu algengt sé að sjúklingar sæki heilbrigðisþjónustu erlendis að frumkvæði íslenskra heilbrigðisstofnana. Þá er óskað upplýsinga um hvaða leiðbeiningar sjúklingar og aðstandendur þeirra fá um réttindi sín í tengslum við slíka þjónustu.
Umboðsmaður hyggst í framhaldinu meta hvort tilefni sé til að taka málefnið til frekari athugunar að eigin frumkvæði. Ráðuneytinu var veittur frestur til 16. október til að svara erindinu.