Danir ætla að hætta minkarækt fyrir fullt og allt, tilkynnti landbúnaðarráðuneyti landsins í morgun. „Danmörk ætlar ekki að sækja um undanþágur til að leyfa danska minkaiðnaðinum að starfa áfram þegar bann Evrópusambandsins við minkarækt tekur gildi í ágúst á næsta ári,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Ríkisstjórnin fyrirskipaði í nóvember 2020 að lóga skyldi öllum minkum landsins, 15 milljónum talsins, af ótta við stökkbreytt afbrigði Covid-19-veirunnar sem talið var að gæti mögulega verið ógn við lýðheilsu.
Síðar kom þó í ljós að stjórnvöld höfðu ekki lagaheimild til að fyrirskipa aflífun dýranna. Öll minkarækt var bönnuð 2021 og 2022 en leyfð á ný 2023. Fáir minkabændur sneru þó til baka og voru aðeins sjö minkabú starfrækt í ágúst. Fyrir faraldurinn voru þau 1.400. Flestir bændanna fengu bætur frá stjórnvöldum til að loka sínum búum og rífa þau niður.
Bann ESB við minkarækt tekur gildi 7. ágúst 2027. Bændur hafa aðlögunartímabil næstu tvö árin eftir það.
Fyrir Covid-faraldurinn var útflutningur minkaskinna frá Danmörku sá umfangsmesti í heimi. Stór hluti framleiðslunnar var fluttur til Kína.