Íranski herinn lokaði Hormússundi í morgun, tæpum sólarhring eftir að hafa opnað það. Íranski byltingarvörðurinn hótar að leggja til atlögu við hvert það skip sem leysir festar í Persaflóa eða Ómanflóa.
Allar tilraunir til siglinga um Hormússund verði álitnar liðsinni við óvininn Bandaríkin og skipin því álitin réttmæt skotmörk, að því er segir í yfirlýsingu sjóhers byltingarvarðarins á eigin vefsíðu.
Íranar kváðust í gærmorgun munu hafa strangt eftirlit með umferð um sundið þar sem Bandaríkin hefðu gengið á bak orða sinna og haldið höfnum landsins í herkví. Írönsk stjórnvöld segja að tæplega 3.500 hafi verið drepin í stríðinu við Ísrael og Bandaríkin.
Donald Trump varaði Írana við afleiðingum þess að beita Hormússundi sem kúgunartóli gegn Bandaríkjunum. „Við erum að ræða við þá, þeir vildu endilega loka sundinu eins og þeir hafa gert árum saman,“ sagði Trump á viðburði í Hvíta húsinu.
Á sama tíma segist þingforsetinn og helsti samningamaður Írana, Mohammad Bagher Ghaliba, telja samkomulag langt undan þótt nokkuð hafi miðað í rétta átt. Mörg grundvallaratriði séu enn óleyst. „Við erum fjarri því að hefja lokaviðræður,“ sagði hann í sjónvarpsávarpi.
Fréttin var uppfærð með orðum þingforseta Írans.