Framkvæmdir hefjast við gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar á næstu dögum. Beygjuvasar verða þá endurnýjaðir og þar settar hraðahindranir, svokallaðar upphækkaðar gönguþveranir.
„Það sem við erum að fara í er fyrst og fremst að bæta umferðaröryggi fyrir keyrandi, gangandi og hjólandi,“ segir Ylfa Rakel Ólafsdóttir, verkefnastjóri hjá Vegagerðinni.
Búist er við því að umferð muni þyngjast verulega á svæðinu á framkvæmdatímanum. Einum vasa verður lokað í einu í um það bil viku hver og fólk beðið um að nota hjáleiðir á meðan.
„Það verður ekki hægt að beygja til hægri á framkvæmdatíma en við erum í rauninni ekkert að breyta beygjunni sjálfri. Hún verður óbreytt nema hærri, til að hægja á umferð,“ segir Ylfa.
Svipaðar upphækkanir má finna víðar á höfuðborgarsvæðinu og segir Ylfa fólk almennt ánægt með þær. Hins vegar verði að sýna þolinmæði á framkvæmdatímanum sjálfum. Vegagerðin viti vel að skólarnir séu að byrja og umferð að þyngjast en það sé betra að klára framkvæmdirnar sem fyrst en að fresta þeim til næsta sumars.
„Þetta verður krefjandi og við áttum okkur alveg á því. Þetta er bara eitthvað sem við verðum að fara í,“ segir Ylfa.