Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur hefur lokið sjö af 31 verkefni sem á að ljúka á 100 dögum, fyrir 10. september. Mörg stór verkefni eru eftir á listanum, borgarstjóri segir að staðið verið við loforð.
2. júní kynnti meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks lista með 190 tímasettum verkefnum sem á að vinna á kjörtímabilinu Listinn er á vefsíðunni verkefnalisti.is og þar er hægt að fylgjast með framvindunni.
31 þeirra á að ljúka á 100 dögum talið frá 2. júní - þ.e. fyrir 10. september. Í dag, 26. júlí, eru 54 dagar liðnir af þessu 100 daga tímabili.
Sjö búin og 24 ólokið
Samkvæmt vefsíðunni er sjö af þessu 31 verkefni lokið. Meðal annars að endurskoða deiliskipulag Suðurlandsbrautar, tryggja óskertan opnunartíma frístundaheimila til klukkan 17, lækka gjöld um 50% fyrir afnot af borgarlandinu fyrir viðburðahald, endurvekja öldungaráð borgarinnar og draga íslenska fánann daglega að húni við ráðhúsið.
„Við erum komin með öll þau mál sem eru á okkar 100 daga lista í vinnslu,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. „Það gengur vel og við munum ljúka öllum okkar verkefnum, sem við lofuðum, fyrstu 100 dagana.“
Mörg þeirra eru stór og flókin og varða samtöl og samráð við fleiri aðila, eins og t.d. um endurskoðun samgöngusáttmálans. Hvar er það á vegi statt?
„Ég hef átt fundi bæði með fjármálaráðherra og innviðaráðherra þar sem þetta hefur verið rætt. Ég hef líka átt fundi með bæjarstjórum nágrannasveitarfélaganna um málið og hef þegar kallað eftir fundi í stýrihópi um samgöngusáttmálann til að ræða nákvæmlega þetta.“
Vilja aðhaldið
Meðal þeirra 24 verkefna sem er ólokið er að afnema reglur um hámarksfjölda bílastæða í nýjum hverfum, falla frá þéttingu í Grafarvogi, innleiða frístundakort fyrir eldri borgara og bæta umhirðu borgarlandsins.
Borgarstjóri segir það hafa marga kosti að birta verkefnalistann opinberlega þar sem allir geti fylgst með stöðu mála. Við viljum aðhaldið. Við viljum að fólk geti fylgst með gangi mála og hvernig okkur gengur að standa við loforðin.“