Í starfsáætlun þingsins var gert ráð fyrir því að þing myndi klárast í dag. Í gær var ákveðið að fella áætlunina úr gildi. Enn er tekist á um stór mál, svo sem samgönguáætlun, fjármálaáætlun og frumvarp um innviðafélag.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, staðfestir í samtali við fréttastofu að seint í gærkvöldi hafi þingflokksformenn komist að samkomulagi um hvaða mál verði afgreidd á þessu þingi. Á dagskrá í dag eru þessi þrjú mál sem nefnd voru hér fyrir ofan en Þórunn segir að þing haldi svo áfram eftir helgi.
Hún gat ekki staðfest hvenær búist er við þinglokum.