Netvís hefur opnað nýja tilkynningagátt þar sem almenningur getur látið vita ef hann verður var við upplýsingar á netinu sem gætu flokkast sem óeðlileg afskipti af komandi þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer í lok ágúst. Stefanía Ragnarsdóttir hjá Netvís segir að þótt engar fréttnæmar tilkynningar hafi enn borist sé viðbúnaður mikill.
„Við vitum að eftir því sem það færist hiti í leikana þá búumst við við slíkum tilkynningum. Við verðum á vaktinni,“ segir Stefanía.
Í samstarfi við lögreglu og samfélagsmiðlafyrirtæki
Netvís er í nánu samstarfi við innlenda aðila, svo sem lögregluna, til að koma alvarlegum málum í réttan farveg. Þá er stofnunin einnig í góðu sambandi við erlendu fyrirtækin sem stýra samfélagsmiðlunum til þess að geta látið fjarlægja efni ef upplýsingaóreiða fer í dreifingu.
Þetta á ekki síst við um falska aðganga og gervimenni sem notuð eru til að efna til átaka eða dreifa lygum. Stefanía bendir á að hægt sé að setja upp slíka aðganga fyrir mjög lítinn pening.
„Við sáum til dæmis í kringum sveitarstjórnarkosningarnar að þar voru bottar [tölvuforrit sem herma eftir mannlegri hegðun] í umferð hér á landi og þetta er í takt við það sem við sjáum í öðrum löndum. Það er full ástæða til að vera meðvituð um að tækninni getur verið beitt til að hræra í pottum og hafa áhrif á skoðanir okkar.“
Gervigreindin er engin „sannleiksmaskína“
Stefanía varar sömuleiðis við blindri trú á gervigreind í tengslum við upplýsingaöflun fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna.
„Eins frábært tól og gervigreindin getur verið þá er hún ekki sannleiksmaskína. Það er mikilvægt að við tökum svörum hennar með fyrirvara, meðal annars með því að biðja hana um að vísa í heimildir og spyrja okkur hvort það séu áreiðanlegar heimildir sem hún er að vísa í.“
Hvetja fólk til að staldra við
Netvís hvetur fólk til að nýta sér tilkynningagáttina á netvis.is ef það verður vart við eitthvað óeðlilegt, en minnir á að ef um alvarleg tilvik er að ræða eigi að hafa samband við lögregluna.
Á vefnum er einnig að finna fræðsluefni þar sem farið er yfir helstu aðferðir sem beitt er til að villa um fyrir fólki og hvaða aukaskref almenningur getur tekið til að staldra við þegar efni er skoðað á netinu.