Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, tekur undir að ótryggara umhverfi í heimsmálum setji íslenskan landbúnað í annað samhengi. Því sé mikilvægt að styðja innlendan landbúnað.
Tilefnið er fundur Söndu Ojiambo, aðstoðarframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, með fulltrúum íslensks atvinnulífs en hún er jafnframt forstjóri United Nations Global Compact, sem er framtak SÞ um ábyrga viðskiptahætti og sjálfbærni. Um 25 þúsund fyrirtæki um heim allan taka þátt í framtakinu.
Getur ekki keppt án verndar
Bjarni segir mega draga þann lærdóm af áföllum í íslenska hagkerfinu á síðustu árum að ekki megi setja öll eggin í sömu körfu.
„Hvað íslenskan landbúnað varðar búum við auðvitað við mjög erfið skilyrði á margan hátt vegna þessarar norðlægu legu. Þess vegna er tómt mál að tala um að íslenskur landbúnaður eigi möguleika á að keppa án verndar eða stuðnings við framleiðslu sem fram fer við allt aðrar aðstæður,“ segir Bjarni sem telur að íslenskur sjávarútvegur og íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið séu fremst í heiminum hvað viðkemur árangri í því að tryggja sjálfbærni til lengri tíma.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.