Alma Möller heilbrigðisráðherra segir að drögum að reglugerð um heilsugæslu verði breytt í kjölfar háværrar gagnrýni lækna varðandi ákvæði um heimilislækna. Í stefnuyfirlýsingu stjórnvalda segir að unnið verði að þjóðarmarkmiði um fastan heimilislækni fyrir alla landsmenn.
Í drögunum er hins vegar kveðið á um að fólk skuli skráð á ákveðna heilsugæslustöð samkvæmt eigin vali en annars samkvæmt lögheimili og „að jafnaði á þverfaglegt teymi heilbrigðisstarfsmanna“ – og því ekki endilega gert ráð fyrir því að fólk sé skráð á fastan heimilislækni.
Orðalagi verði breytt
Alma segir í aðsendri grein á Vísi að hún skilji gagnrýni lækna á að orðalagið sé ekki fyllilega skýrt og afdráttarlaust. Hún segir að ákvæðið hefði átt að orðast þannig að einstaklingur sé „að jafnaði skráður hjá heimilislækni eða á þverfaglegt teymi heilbrigðisstarfsmanna“ – reglugerðinni verði breytt og tími til umsagna lengdur.
„Viðbrögð lækna við þessu – því að í reglugerðardrögunum sé ekki orðað skýrt og afdráttarlaust að einstaklingur skuli að jafnaði skráður hjá tilgreindum heimilislækni – eru skiljanleg,“ segir Alma í greininni.
Þjóðarmarkmið um fastan heimilislækni fyrir alla landsmenn hafi verið kynnt sem tíu ára markmið enda ljóst að það taki tíma að uppfylla það vegna umtalsverðs skorts á heimilislæknum.
Sérnámslæknum í heimilislækningum hafi fjölgað, úr 38 árið 2017 í 120 árið 2026, og þeir hafi aldrei verið fleiri.