Landsréttur hefur snúið við dómi héraðsdóms í nauðgunarmáli. Talskona Stígamóta segir að dómurinn í héraði hafi verið í andstöðu við réttarvitund almennings.
Einnig verður fjallað um samgöngur á Breiðafirði en frá og með mánudeginum verður ferjan Baldur færð til Vestmannaeyja vegna mikilla anna í flutningum þar. Bæjarstjóri Stykkishólm segir tilfærsluna óheppilega og ekki í samræmi við samkomulag við ríkið.
Grindvíkingar eru afar ósáttir við stjórnvöld og segja að eftir fund með forsvarsmönnum Þórkötlu á miðvikdag sé ljóst að það sé ekki fasteignafélagið sem stendur í vegi fyrir lausnum í húsnæðismálum Grindvíkinga.
Vilhjálmur Árnason mun segja af sér þingmennsku á næstu dögum og segir af afsögn sín muni ekki kosta ríkissjóð eina krónu. Við förum einnig yfir mögulegan fund Vólódímír Selenskí og Vladimír Pútín og segjum frá bakslagi í veikindum Mette-Marit krónprinsessu Noregs.
Í íþróttunum segjum við frá heimkomu Söru Bjarkar Gunnarsdóttur og förum yfir gríðarlega mikilvægan leik kvennalandsliðsins í fótbolta gegn Úkraínu í dag.