Í fréttum Sýnar var fjallað um þotuna sem skipar einstakan sess í flugsögu Íslendinga. Hún er sú farþegavél sem langlengst hefur þjónað Icelandair, eða í 36 ár. Og mörgum þykir hún bera af þegar kemur að því að metast um fegurð flugvéla.
En núna hefur Icelandair tilkynnt að síðustu 757-þoturnar verði teknar úr notkun fljótlega eftir næstu áramót, um ári fyrr en félagið hafði áður áætlað.
Þoturnar hafa einnig verið nýttar í leiguflugi hjá systurfélaginu Loftleiðum en framkvæmdastjórinn Árni Hermannsson segir þær henta best þeim verkefnum sem félagið sinnir.
„Þetta eru langbestu flugvélar sem þú finnur. En því miður þá eru þær að verða svolítið gamlar og eyða of miklu,“ segir Árni hér í frétt Sýnar:
Þá vaknar sú spurning: Hvað gera Loftleiðamenn?
„Við erum búin að vera á undanförnum mánuðum að leita að arftaka 757 í þessum VIP-flugum. Það er ljóst að við verðum ekki komin með arftakann fyrr en í fyrsta lagi eftir tvö til þrjú ár. Þannig að vissulega myndi það henta okkur betur að vera með 757-urnar áfram í rekstri,“ segir Árni.
Og líklegt er að Árna verði að ósk sinni um að hafa þær lengur. Um það spurðum við Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair:
„Við erum að horfa til þess að reka þær einhver ár áfram hjá Loftleiðum, það er uppleggið okkar,“ svarar Bogi Nils.
Þegar kemur að arftakanum horfa Loftleiðamenn einnig á Airbus, eins og Icelandair.
„Það er mjög líklegt að þetta verði einhverjar Airbus-vélar sem munu taka við af þessum vélum. Við erum með þrjár vélar í þessu eingöngu,“ segir Árni Hermannsson, framkvæmdastjóri Loftleiða Icelandic.