Björgólfur Thor Björgólfsson hefur flutt skattalegt heimilisfesti sitt frá Bretlandi til Ítalíu. Þá hefur fjárfestingarfélag hans, Novator, verið flutt frá London til Zurich í Sviss.
Breska blaðið Telegraph greinir frá þessu og segir að Björgólfur bætist þar í sístækkandi hóp viðskiptamanna sem hafa flutt skattalegt heimilisfesti sitt frá Bretlandi til að komast hjá aukinni skattheimtu.
Ríkisstjórn Verkamannaflokksins hefur gert breytingar á skattkerfi landsins og aflagt það sem Bretar kalla non-dom reglur, þ.e. reglur um þá sem dvelja í Bretlandi en eru með varanlegt heimili sitt skráð annars staðar. Þeir sem hafa slíka skráningu hafa hingað til ekki þurft að greiða skatt í Bretlandi á tekjur sem aflað er utan landsteinana, til að mynda vegna félaga sem eru skráð á lágskattasvæðum.
„Það er ótrúlegt hversu hratt þetta hefur skeð,“ hefur Telegraph eftir Björgólfi. „Það sem veldur mér áhyggjum er að ríkisstjórnin gerði mistök og áttaði sig á því,“ segir hann. Þá leggur hann til að Bretar taki upp flatan skatt, rétt eins og Ítalir, með þaki á það hversu mikinn skatt einstaklingar geta greitt.
Björgólfur Thor Björgólfsson er auðugasti Íslendingurinn. Samkvæmt lista Forbes yfir auðugustu menn heims eru eigur hans metnar á um einn milljarð bandaríkjadala, um 125 milljarða króna. Hann á hlut í svissneska lyfjafyrirtækinu Xantis og síelska fjarskiptafélaginu WOM auk fjárfestingarfélagsins Novator.
Hann var ásamt föður sínum, Björgólfi Guðmundssyni, aðaleigandi Landsbankans fyrir bankahrun