Bilunin hefur truflað þjónustu Microsoft í meira en hálfan sólarhring. Fram kemur hjá Microsoft á samfélagsmiðlinum X að notendur á öllum svæðum gætu átt í erfiðleikum með að tengjast Microsoft 365 en fyrirtækið rekur vandann til aukins álags á tæknilega innviði og segir að reynt sé að endurheimta tengingu við netþjóna sem hafa orðið fyrir áhrifum.
Um 430 milljónir um heim allan nota Microsoft 365 en bilunin hefur einnig haft áhrif á gervigreindarfyrirtækin OpenAI og Anthropic.
Hér fyrir neðan er hægt að fylgjast með öllum helstu vendingum vegna bilunarinnar.