Bílstjóri rútu sem valt á Snæfellsnesi í október hefur verið ákærður vegna lögbrota í tengslum við þá ökuferð. Lögreglan á Vesturlandi ákærði manninn fyrir að aka rútu í atvinnuskyni án meiraprófs og fyrir að stunda ferðaþjónustu án þess að hafa til þess leyfi.
42 erlendir ferðamenn voru í rútu sem fór út af veginum í Seljafirði á Snæfellsnesi að kvöldi 6. október. Hún valt og hafnaði á hvolfi. Enginn slasaðist alvarlega. Ásmundur Kristinn Ásmundsson yfirlögregluþjónn sagði þá að betur hefði farið en á horfðist.
Tveir voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík og nokkrir voru sendir þangað með sjúkrabíl.
Bílstjórinn reyndist vera erlendur ríkisborgari sem býr ekki hér á landi og hafði hvorki meirapróf til að keyra rútuna né rekstrarleyfi til að stunda farþegaflutninga í atvinnuskyni hér á landi. Lögregla segir að hann hafi þó ekið með farþega gegn gjaldi daginn í október þegar rútan endaði utan vegar.
Ákæran á hendur manninum var birt í Lögbirtingablaðinu í dag. Það þýðir að ekki hefur tekist að birta honum hana í persónu. Maðurinn er kvaddur til að koma fyrir dóm, hlýða á ákæru, halda uppi vörnum og sæta dómi. Ef hann mætir ekki má hann búast við að fjarvera hans verði túlkuð sem játning og hann dæmdur eftir því.