Eftir sólríka daga hefur þykknað upp á Suður- og Vesturlandi en í dag verður besta veðrið norðaustan- og austanlands.
Í dag verður austlæg eða breytileg átt 3-10 m/s í dag og líkur á vætu, einkum norðvestantil, en yfirleitt léttskýjað norðaustan- og austanlands. Hiti verður á bilinu 6 til 19 stig og verður svalast austast á landinu.
Á morgun er spáð vaxandi norðaustanátt, 8-15 m/s seinni partinn og hvassast norðvestantil og syðst á landinu. Það verður skýjað en þurrt að kalla suðaustantil en annars víða bjart veður en líkur á síðdegisskúrum suðvestanlands. Hitinn verður svipaður en hlýnar heldur vestanlands.