„Við erum búin að handsala við hann samkomulag,“ staðfestir Eysteinn Heiðar Kristjánsson, oddviti Framsóknar í sveitarfélaginu, í samtali við Vísi.
Vikublaðið greindi fyrst frá ráðningunni eftir að oddviti D-listans upplýsti starfsfólk sveitarfélagsins um ráðninguna í tölvupósti í dag.
Eftir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí var myndaður fjögurra flokka meirihluti með fulltrúum Framsóknar, Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Óskalistans.
Fyrsti fundur nýrrar sveitarstjórnar verður haldinn fimmtudaginn 11. júní og í kjölfarið á honum verður ráðningarsamningur gerður við Bergþór.
Eysteinn segir að Bergþór hafi orðið fyrir valinu vegna reynslu sinnar sem fjármálastjóri sveitarfélagsins, en Bergþór hefur starfað sem slíkur síðustu fjögur ár auk þess sem hann hefur verið staðgengill sveitarstjóra.
„Hann er okkur góðkunnugur,“ bætir Eysteinn við.
Bergþór er með BS-gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst og MLM-gráðu í forystu og stjórnun frá sama skóla. Áður en hann tók til starfa hjá sveitarfélaginu hafði hann starfað hjá Landsbankanum í 14 ár, þar af 11 ár sem útibússtjóri Landsbankans á Húsavík, Þórshöfn, Raufarhöfn og Kópaskeri.
Nýr sveitarstjóri tekur við af Katrínu Sigurjónsdóttur sem hefur starfað sem sveitarstjóri frá byrjun síðasta kjörtímabils, 2022, þegar Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn mynduðu saman meirihluta í sveitarfélaginu.
Ekki náðist í Berþór við vinnslu fréttar.