Hamas og bandamenn þeirra beittu gísla sína kerfisbundnu og umfangsmiklu kynferðisofbeldi eftir árásirnar á Ísrael 7. október 2023. Þetta kemur fram í skýrslu sem er unnin af sjálfstæðri ísraelskri rannsóknarnefnd. AFP fréttaveitan greinir frá.
Rannsókn nefndarinnar leiddi í ljós að Hamas-liðar og bandamenn þeirra beittu gísla kynferðisofbeldi og pyntingum á mörgum mismunandi stöðum, þegar þeim var rænt, í flutningum á milli staða og á meðan þeir voru í haldi. Ofbeldið einkenndist af mikilli grimmd og þjáningu og var beitt til að ógna og niðurlægja.
Rannsakendur byggja gögn sín á vitnisburði vitna, gísla og sérfræðinga, og miklu magni upplýsinga, ljósmyndum og myndskeiðum. Rannsóknarnefndin segir ofbeldið vera stríðsglæpi, glæpi gegn mannkyni og þjóðarmorð samkvæmt alþjóðalögum.
Ísraelar gagnrýndu Sameinuðu þjóðirnar og mannréttindasamtök fyrir að leiða kynferðisofbeldi Hamas-liða hjá sér. Sérstakur fulltrúi aðalritara Sameinuðu þjóðanna vann skýrslu í mars 2024 og niðurstöður hennar voru að frásagnir gísla væru skýrar og greindu frá því að sumar konur og börn hefðu orðið fyrir kynferðisofbeldi, pyntingum og ómannúðlegri meðferð á meðan þau voru í haldi.
1.221 voru drepnir í árás Hamas á Ísrael 7. október samkvæmt fréttaveitunni AFP. Hamas-liðar tóku 251 gísla þennan dag en þar af voru 44 þeirra látnir við gíslatökuna. 41 gísl var drepinn eða lést af öðrum orsökum í haldi Hamas.
Ísraelsher hóf síðan árásir á Gaza og hafa yfir 72.000 manns verið drepnir síðan átökin hófust.