Beint flug til Kína hefst
Kínverska sendiráðið hefur tilkynnt um fyrsta beina flugið á milli Kína og Íslands.
Kínverska sendiráðið á Íslandi hefur tilkynnt um fyrsta beina flug á milli Íslands og Kína.
Air China sér um flugið en það fyrsta verður 26. október frá Keflavíkurflugvelli til Beijing.
„Hvílíkur árangur í tvíhliða samskiptum!“ segir í færslu sendiráðsins á Facebook. „Þetta mun gjörbreyta ferðalögum á milli Kína og Íslands sem og á milli Asíu og Evrópu!“
He Rulong, sendiherra Kína á Íslandi, hefur lengi talað fyrir beinu flugi á milli landanna, en í júní heimsóttu fulltrúar Air China Ísland til að skoða möguleikann.
Miðasala hefur verið opnuð og mögulegt er að bóka miða í gegnum vefsíðu Air China.