„Ég sat í átta ár í Þingvallanefnd ásamt Össuri Skarphéðinssyni og Birni Bjarnasyni. Þingvöll varðar okkur öll, þetta er helgasti staður þjóðarinnar; þar var Alþingi stofnað og þar komu hetjurnar saman og gerðu landið að því farsældarríki sem það er. Þar tókum við kristna trú sem hefur nú verið grundvöllur lífs þessarar þjóðar og hamingju,“ segir Guðni í samtali við Vísi.
Skemmtanir á Þingvöllum þekkst í þúsund ár
Guðni ritar grein í Morgunblaðið í morgun þar sem hann tekur á tveimur álitaefnum og lýsir yfir afgerandi skoðun á þeim báðum.
„Ég tel mikilvægt að gefa íslensku fólki, æskunni og öllum Íslendingum einhverja hlutdeild í Þingvöllum. Nú eru 95 prósent sem þangað koma útlendingar, ferðamenn og Íslendingum finnst að þeir eigi ekki heima þar. Þess vegna er mikilvægt að búa til stundir sem við Íslendingar eigum þar saman.“
Guðni nefnir að Þingvellir séu á heimsminjaskrá og séu heimsfrægur staður þar sem elsta löggjafarþing heims var stofnað.
„Og svo er fegurðin. Þarna var miðstöð Íslands, þegar hesturinn var fararskjótinn, þá komu menn þarna saman alls staðar að til að halda þing. Skemmtanir hafa þekkst á Þingvöllum í þúsund ár, æskan hefur glaðst og ég vil að við gefum æskunni tækifæri til að njóta þessa staðar.“
Að sögn Guðna gætu tónleikarnir gefið Þingvallanefnd fjörutíu milljónir króna. Það vill Guðni nýta til að veita grunnskólabörnum tækifæri til að sækja staðinn heim og læra um sögu hans.
Látið bein Jónasar í friði
Guðni segist jafn ósáttur við það að nú standi til að grafa í legstað Jónasar Hallgrímssonar til að rannsaka beinin.
„Þarna er verið að vekja gamlar illdeilur en beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli, þau eru þar ásamt beinum Einars Benediktssonar, sem eru tvö frægustu ljóðskáld okkar, af virðingu fyrir skáldskap þeirra. Þeir voru miklu meira en skáld. Einar var athafnamaður og átti sér hugsjónir í virkjunum og afli fossanna.
Jónas var magnaðasti náttúrufræðingur Íslands sem gaf okkur hlutdeild í blómum vallarins. Þá var hann mestur smiður tungunnar og nýyrðasmiður. Ég vil láta bein hans í friði og að menn hætti svona rugli því andi þeirra skálda er frjáls. Steinarnir eru bara minningarsteinar um tvo merka menn. Það skiptir engu hvað er þar undir, það eru bein sem eru að verða að mold,“ segir Guðni.
Hann vísar til skáldskapar Jónasar. „Nú er hún Snorrabúð stekkur, og lyngið á Lögbergi helga, blánar af berjum hvert ár, börnum og hröfnum að leik.“
„Allt horfið frá Þingvöllum. Ég vil að Þingvöllur verði aftur og áfram helgasti staður þjóðarinnar og þetta þurfum við að gera. Ekki hafa Þingvöll í eyði.“