Barnastjörnurnar sem Hollywood brást - Vísir

Barnastjörnurnar sem Hollywood brást - Vísir

Barnastjörnurnar sem Hollywood brást - Vísir

Skemmtanabransinn getur verið grimm skepna og fáir staðir eins harðneskjulegir og Hollywood. Það er nógu erfitt að vera leikari í bransanum og þurfa að díla við stöðugt áreitið, harða samkeppnina og gammana sem reyna að misnota stöðu sína. Saga barnastjarna í Hollywood er sérstaklega svört og hefur verið það frá árdaga bransans. 

Ein fyrsta barnastjarna heims var Jackie Coogan sem sló í gegn sjö ára gamall þegar hann lék drenghnokkann í The Kid eftir Charlie Chaplin árið 1921. Næsta áratuginn lék Coogan í fjölda kvikmynda og á ferli sínum sem barnaleikari græddi hann á bilinu þrjár til fjórar milljónir Bandaríkjadala (andvirði 55,9 til 74 milljóna dala í dag). 

Chaplin og Coogan í The Kid.Britannica

Skömmu eftir að hann náði fullorðins­aldri uppgötvaði Coogan að móðir hans og stjúpfaðir höfðu sóað nánast öllum laununum. Vegna þessa lögsótti Coogan þau vegna tekjumissisins þegar hann var 23 ára. „Hver dalur sem krakki græðir fyrir 21 árs aldur tilheyrir foreldrum hans, Jackie fær ekki eitt sent af tekjunum,“ var haft eftir stjúpföðurnum í umfjöllun tímaritsins Life.

Að málaferlunum loknum sat Coogan uppi með einungis um 126 þúsund dali af milljónunum. Mál leikarans varð til þess að Kaliforníu-ríki setti í lög barnaleikarafrumvarpið, oft kallað Coogan-frumvarpið, árið 1939. Lögin tryggðy að fimmtán prósent af tekjum barnaleikara færu í lokaðan sjóð þar til viðkomandi yrði fjárraða og sögðu jafnframt til um hámarks­vinnutíma og menntun barna­leikara.

Coogan var fyrsta fræga dæmið um barnaleikara sem var fjárhagslega misnotaður af foreldrum sínum en áratugina síðan þá er urmull fleiri leikara sem hafa lent í svipuðum hremmingum. En það eru ekki bara foreldrarnir sem þarf að varast, leikarabörn í Hollywood hafa oft lent í klóm reynslumeira fólks í bransanum.

Judy Garland byrjaði að leika þrettán ára gömul í Hollywood, varð að stjörnu eftir að hafa leikið Dóróteu í Galdrakarlinum í Oz (1939) og átti rúman þrjátíu ára feril í bransanum. Garland lýsti því að hún og aðrar barnastjörnur hefðu reglulega fengið ýmist róandi lyf og amfetamín til að ráða betur við hasarinn í tökum. Garland ánetjaðist svo verkjalyfjum og glímdi ævilangt við fíkn sem dró hana á endanum til dauða 1969, þegar hún lést af of stórum svefnlyfjaskammti 47 ára.

Judy Garland lék Dóróteu eftirminnilega.Warner Home Video

Ábyrgðarlausir foreldrar og stelpur sem lentu í rugli

Á áttunda, níunda og tíunda áratugnum kom fram fjöldi barnastjarna sem lenti illa í því. Þetta voru ýmist börn sem ólust upp hjá foreldrum sem komu illa fram við þau eða þoldu illa frægðina, lentu í slæmum félagsskap og leiddust út á braut vímuefnaneyslu.

Tatum O'Neal varð tíu ára gömul yngsti Óskarsverðlaunahafi sögunnar þegar hún var verðlaunuð fyrir leik sinn í kvikmyndinni Paper Moon (1973) þar sem hún lék á móti föður sínum, Ryan O'Neal.

Tatum O'Neal með Óskarinn fyrir besta leik í aukahlutverki.UCLA Library Special Collections

Tatum hefur lýst því í viðtölum að báðir foreldrar hennar hefðu glímt við fíkn. Móðir hennar, leikkonan Joanna Moore, hefði gefið henni áfengi þegar hún var sex ára og faðir hennar beitt hana bæði líkamlegu og andlegu ofbeldi. Í ævisögu sinni lýsti Tatum því að dópsali föður hennar hefði misnotað hana þegar hún var tólf ára. 

Tatum lenti sjálf illa í vímuefnum, fyrst áfengi og síðan sterkari efnum eins og kókaíni og heróini. Hún missti um tíma börn sín frá sér vegna fíknarinnar og hlaut árið 2020 heilablóðfall vegna morfínnotkunar, lá sex vikur í dái og þurfti að fara í gegnum langa endurhæfingu. Hún er þó langt því frá eina barnastjarnan sem lenti illa í fíkn.

Hollywood-stjarnan Drew Barrymore er af mikilli leikarafjölskyldu, byrjaði fimm ára gömul að leika í kvikmyndum og sló í gegn í E.T. (1982) aðeins sjö ára gömul. Skyndileg frægðin fór illa með hana, hún byrjaði að drekka áfengi níu ára gömul, nota sterkari vímuefni frá tólf ára aldri og var tíður gestur á næturklúbbnum Studio 54 með móður sinni.

Þrettán ára gömul fór Barrymore fyrst í meðferð, varði átján mánuðum á geðsjúkrahúsi og endaði svo aftur í meðferð eftir að hún reyndi að stytta sér aldur fjórtán ára gömul. Vist hjá tónlistarmanninum David Crosby og Jan Dance hjálpaði henni að komast á réttan kjöl og öðlaðist hún sjálfræði frá foreldrum sínum fimmtán ára gömul. Þrátt fyrir þessa erfiðu æsku og áframhaldandi veru á forsíðum fjölmiðla þá slapp Barrymore nokkuð ósködduð og skapaði sér ágætis feril í Hollywood.

Barrymore í hlutverki Gertie andspænis geimverunni ET.Universal

Strákarnir sem lifðu og strákarnir sem dóu

Aðrar barnastjörnur frá þessum tíma sluppu ekki eins vel, það voru sérstaklega margrir strákar sem slógu í gegn á áttunda og níunda áratugnum sem fóru illa út úr frægðinni.

River Phoenix ólst upp í mikilli fátækt í sértrúarsöfnuðinum Börnum guðs í Venesúela áður en fjölskyldan flutti til Bandaríkjanna og hann byrjaði að leika í auglýsingum tíu ára gamall. Phoenix vakti athyli fyrir fyrstu hlutverk sín í The Explorers (1985) og Stand By Me (1986), varð algjör stjarna og var síðar tilnefndur til Óskarsverðlauna. Á táningsárum byrjaði Phoenix að neyta áfengis og vímuefna og lést árið 1993, aðeins 23 ára gamall, af ofskömmtun kókaíns og ópíóða.

Sjá einnig: Hjartaknúsarinn sem ólst upp í sértrúarsöfnuði, flaug of hátt og hrapaði á Sunset Boulevard

Annar maður sem fór svipaða leið var Brad Renfro sem vakti ungur athygli fyrir leik í The Client (1995) og Apt Pupil (1998) en lenti snemma í vandræðum. Frá fimmtán ára aldri komst hann ítrekað í kast við lögin, var inn og út úr meðferð og lést af völdum heróínofskömmtunar árið 2008, einungis  25 ára gamall.

Phoenix í Stand By Me og Brad Renfro í The Client.

Á svipuðum tíma varð Maculay Culkin ein stærsta barnastjarna heims eftir leik í Home Alone (1991). Faðir leikarans beitti hann andlegu og líkamlegu ofbeldi frá unga aldri og þegar hann var fjórtán ára lét Maculay fjarlægja foreldrana sem fjáhaldsmenn sína. Í kjölfarið hætti Culkin að leika og sneri ekki aftur á skjáinn fyrr en átta árum síðar. Á fullorðinsaldri var leikarinn handtekinn fyrir vörslu maríjúana og verkjalyfja og fjölluðu slúðurblöð mikið um meinta neyslu hans á hörðum efnum, sem hann neitaði sjálfur.

Macaulay Culkin í Home Alone.IMDB

Með sorglegri dæmunum eru Corey Haim og Corey Feldman sem vöktu athygli í byrjun níunda áratugarins. Þeir urðu frægir sem Corey-arnir tveir, léku saman í hryllingskómedíunni The Lost Boys (1987) og sex öðrum myndum til viðbótar, auk þess að leika í fjölmörgum myndum hvor í sínu lagi. Þeir lýstu báðir reynslu sinni af því að hafa verið misnotaðir kynferðislega af háttsettum einstaklingum í Hollywood og leiddust snemma út í harkalega neyslu. 

Sjá einnig: Nafngreinir mann sem misnotaði hann sem barn

Corey-unum gekk illla að feta sig í Hollywood á fullorðinsaldri og voru upp úr aldamótum báðir illa farnir af áralangri vímuefnamisnotkun. Árið 2007 gerðu þeir saman raunveruleikaþættina The Two Coreys um samband sitt. Aðeins þremur árum síðar lést Haim úr lungnabólgu, 38 ára gamall, eftir að hafa gjöreyðilagt líkama sinn. Feldman hefur síðan þá talað opinskátt um víðfeðma kynferðislega misnotkun í Hollywood og gaf árið 2020 út heimildarmyndina My Truth: The Rape of 2 Coreys um reynslu þeirra tveggja.

Corey Feldman, Jamison Newlander og Corey Haim í The Lost Boys.

Disney-stelpur undir smásjánni 

Á seinni hluta tíunda áratugarins og upp úr aldamótum má segja að slúðurmiðlar hafi náð ákveðnum hápunkti með stöðugri umfjöllun allan sólarhringinn og tilkomu netsins sem jók dreifingu. Þessu fylgdi stöðugt áreiti fyrir Hollywood-stjörnur sem voru eltar á röndum af papparössum og undir stöðugri smásjá.

Sjá einnig: Britney farin í meðferð

Fjölmargar barnastjörnur fengu að kenna á því í pressunni sem jók bara á álagið sem fyrir var. Frægasta dæmið er auðvitað Britney Spears sem byrjaði ferilinn sem barnastjarna hjá Disney og varð síðan heimsfræg poppstjarna. Stöðugt áreiti fjölmiðla, bágar fjölskylduaðstæður, hrakandi andleg heilsa og vímuefnaneysla gerðu að verkum að Spears keyrði yfir um árið 2007 og fékk taugaáfall sem allur heimurinn fylgdist með.

Britney missti í kjölfarið forræði yfir sonum sínum tveimur og fékk faðir hennar, Jamie Spears, síðan forræði yfir bæði fjármálum söngkonunnar og öllum hennar ákvörðunum. Britneyt barðist í áraraðir fyrir frelsi sínu og fékk það á endanum 2021, orðin fertug. 

Þrátt fyrir það má segja að Britney hafi aldrei jafnað sig fyllilega, hún hefur síðustu ár vakið undrun fólks vegna hegðunar sinnar og var nýverið handtekinn fyrir að aka ölvuð undir stýri. Aðrar Disney-barnastjörnur frá þessum tíma fóru líka illa út úr frægðinni.

Lindsay Lohan lenti í ýmsum vandræðum.

Lindsay Lohan sló í gegn í Disney-myndunum Parent Trap (1998) og Freaky Friday (2003) og festi sig í sessi sem stjarna með Mean Girls (2004). Lohan réði illa við frægðina, leiddist út í mikla kókaínneyslu, komst ítrekað í kast við lögin og fór mörgum sinnum í meðferð. Þrátt fyrir þessi áralöngu vandræði virðist Lohan hafa náð að snúa við blaðinu.

Önnur Disney-stjarna, Amanda Bynes, hefur ekki plummað sig eins vel. Eftir vinsæla þætti hjá Disney lék hún í gamanmyndunum Big Fat Liar (2002), What a Girl Wants (2003) og She's the Man (2006). Glíma við vímuefnaneyslu og andleg veikindi gerðu að verkum að Bynes hætti í bransanum og missti sjálfræði sitt til foreldra sinna frá 2013 til 2022. 

Fjöldi barnastjarna hefur auðvitað sloppið vel, þríeykið úr Harry Potter-seríunni, Daniel Radcliffe, Emma Watson og Rupert Grint, hefur ekki lent í neinum teljandi vandræðum. Sama má segja um þekkta leikara á borð við Christian Bale og Natalie Portman sem hafa vaxið úr barnastjörnum í virt leikara. Þótt margar Disney-stjörnur hafi lent í brasi, er ekki hægt að segja það sama um Zendayu eða Selenu Gomez.

Sú þriðja sem deyr á átján mánuðum

Þótt margir hafa komið óskaddaðir út úr bransanum á síðustu árum þá berast enn tíðindi af barnastjörnum sem urðu fyrir barðinu á skuggahliðum frægðarinnar. Síðustu átján mánuði hafa þrjár tiltölulega unga leikkonur fallið frá með voveiflegum hætti eftir að hafa glímt við ýmiss vandræði í einkalífinu.

Michelle Trachtenberg, sem hóf ferilinn ung hjá Nickelodeon, öðlaðist frægð í þáttunum Buffy The Vampire Slayer og Gossip Girl og lék í grínmyndinni Eurotrip, lést í febrúar á síðasta ári, 39 ára að aldri. Hún hafði skömmu fyrir andlátið gengist undir lifrarígræðslu í kjölfar margra ára glímu við áfengisfíkn. Síðasta áratuginn áður en hún lést hafði hún ekkert leikið og var afar heilsuveil.

Þá bárust fréttir í byrjun þessa árs af því að barnastjarnan Daveigh Chase hefði látist af völdum alnæmis eftir áralanga lyfjamisnotkun. Chase braust fram á sjónarsviðið á fyrstu árum þessarar aldar þegar hún ljáði Lilo rödd sína í teiknimyndinni Lilo & Stitch (2002) og lék draugastúlkuna Samöru í The Ring (2002). 

Eftir öfluga byrjun á ferlinum lék Chase í þáttunum Big Love (2006-11) og ýmsum kvikmyndum en lét sig svo hverfa algjörlega af sjónarsviðinu um 2015. Upp frá því glímdi hún við mikla fíkniefnaneyslu, bjó lengi vel á götunni og komst í kast við lögin áður en hún lést.

Þriðja og síðasta stúlkan er svo Hayden Panettiere sem lést á sunnudaginn en dánarorsök hennar liggur ekki fyrir. Líklegt þykir að um ofskömmtun hafi verið að ræða en hún hafði glímt við ópíóða- og áfengisfíkn um árabil.

Panettiere hafði starfað sem leikkona frá því hún var kornabarn og þannig varið allri ævinni í bransanum. Leikkonan skrifaði um þessa reynslu í ævisögu sinni, This Is Me: A Reckoning, sem kom út fyrr á árinu en þar er að finna lýsingar sem ríma við upplifun margra barnastjarna.

Sjá einnig: Úrskurðuð látin á vettvangi

Panettiere skrifar þar um það hvernig henni var ýtt áfram sem barni af kröfuharðri móður (sem hún rauf síðar samskiptin við), var hvött til að taka vímuefni af fullorðnu fólki til að eiga betur við álagið, var kynferðislega áreitt af körlum Hollywood, lifði við heimilisofbeldi, glímdi við fæðingarþunglyndi og ánetjaðist vímuefnum.

Sum þessara vandamála eru auðvitað eitthvað sem venjulegt fólk glímir við og hefur mun minni pening milli handanna til að leysa úr þeim. En það er eitthvað við skemmtanabransann í Hollywood, þar sem börn eru strax sett undir mikið álag, umkringd sér eldra fólki og fá svimandi háar fjárhæðir, sem gerir að verkum að sögur barnastjarna enda oft á tragískan máta. 

Hvorki peningurinn né utanumhaldið virðist duga til að vernda þessi börn. Það sem á að vernda þau, foreldrar, samstarfsfélagar og umboðsmenn, er líka oft það veldur mestum skaða. Hollywood græðir á hæfileikum þessara barna en sýgur oft um leið úr þeim lífsorkuna með mismiklum hraða. 

#barnastjörnurnar #brást #hollywood #sem #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262922890d/barnastjornurnar-sem-hollywood-brast

📰 Aðrar fréttir

COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
📅 08.10.2026 👁️ 1
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
Landsréttur hefur staðfest dóm yfir Stefáni Magnússyni fyrir skattalagabrot í rekstri nokkurra mjög þekktra og vinsælla veitingastaða. Stefán var saka...
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
📅 08.10.2026 👁️ 0
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
"We'll make sure that people are able to watch it," the US Defence Secretary Pete Hegseth said on Thursday.
Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 0
Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
Þetta verður í fyrsta sinn sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Hasan skaut þrettán óvopnaða hermenn t...
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
📅 08.10.2026 👁️ 0
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
Halla Gunnarsdóttir formaður VR vísar ásökunum Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar um að kjaraviðræður VR við Samtök atvinnulífsins hafi verið...
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 0
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
Dorrit er fædd í Ísrael en fluttist til Bretlands á unglingsárunum. Rætt var við Dorrit í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag, af því tilefni að í gæ...
Máttu tæma lónið - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 0
Máttu tæma lónið - Vísir
Málið á rætur að rekja til haustsins 2020 þegar Orkuveita Reykjavíkur tók ákvörðun um að Árbæjarlón yrði tæmt til frambúðar. Með því var ákveðið að El...
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 1
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
Á morgun, 9. október, er fjörutíu ára afmælisdagur sjónvarps á Sýn sem þar til í fyrra hét Stöð 2. Í tilefni dagsins verður sérstakur afmælisþáttur sý...
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
📅 08.10.2026 👁️ 1
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
Landsréttur hefur staðfest riftun héraðsdóms á kaupum tveggja kvenna á einbýlishúsi á Ólafsfirði sem þær keyptu af karlmanni fyrir 33 milljónir króna ...
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
📅 08.10.2026 👁️ 1
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
The prime minister has intervened in the row over the motion passed by members at Green Party conference.
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
📅 08.10.2026 👁️ 1
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist telja að leikrit hafi verið sett á svið í samningaviðræðum SA og VR. Hún segist íhuga alvarlega stöðu...
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
Árið 1969 bættust síðan við verðlaun sænska seðlabankans í hagfræði í minningu Alfreds Nobel. Nóbelsverðlaunin eru veitt ár hvert og verðlaunahafar fá...
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
📅 08.10.2026 👁️ 2
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir það ekkert ástríðumál fyrir Evrópusinna að samþykkja frumvarp um Bókun 35. Þetta sé einfaldlega partur af...
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
📅 08.10.2026 👁️ 3
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
Það er vinsæll samkvæmisleikur áhugafólks um bókmenntir að giska á hvaða höfundur hreppir Nóbelsverðlaunin ár hvert. Fréttastofa heimsótti Einar Björn...
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
📅 08.10.2026 👁️ 3
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands segir það mikið gleðiefni að ríkisstjórnin, Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samband ísl...
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
„Fréttir af knattspyrnuleik nemenda skólanna okkar sem fram fór í gærkvöldi eru okkur vægast sagt mikil vonbrigði,“ skrifar Sólveig Guðrún Hannesdótti...
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
📅 08.10.2026 👁️ 3
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
Það er nóg að gera hjá kornbændum þessa dagana, eins og á bænum Hvammi í Ölfusi, en þar er korn ræktað á um 24 hekturum og er nánast búið að slá og þr...
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
„Ég vil tryggja að launafólk haldi ekki að þetta leikrit hafi skilað einhverjum árangri umfram það sem Breiðfylkingin hafði þegar náð fram,“ skrifar V...
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
📅 08.10.2026 👁️ 4
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
📅 08.10.2026 👁️ 1
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
📅 08.10.2026 👁️ 4
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
Ákveðið hefur verið að aflýsa eða fresta viðburðum í tilefni árlegrar MR-VÍ viku vegna skrílsláta sem upp komu á fótboltaleik skólanna tveggja í gær. ...
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
Öryggisverðir við herstöð breska flughersins við Molesworth fundu yfirgefinn bíl nærri herstöðinni um klukkan tíu í gærkvöldi, að staðartíma. Í kjölfa...
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
📅 08.10.2026 👁️ 4
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND) Fréttin8. október 2026ErlentLeave a Comment Fundur í borgarstjórn í Iowa hefur v...
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og mennta- og barnamálaráðherra undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði. Stækk...
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu Formað­ur Starfs­greina­sam­bands­ins seg­ir VR og Fag­fé­lög­in ekki hafa náð fr...
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
📅 08.10.2026 👁️ 4
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
Fyrirhugað frumvarp um breytingar á húsaleigulögum sem nú er rætt á Alþingi er ekki bara leigjendum þessa lands til hagsbóta, heldur almenningi sem he...
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
Formsatriði varð til þess að Landsréttur vísaði frá kröfu hálfbróður Margrétar Löf um að hún yrði svipt erfðarétti yfir föður sínum. Landsréttur staðf...
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
📅 08.10.2026 👁️ 4
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
Einar Bárðason, framkvæmdastjóri og viðburðahaldari með meiru, er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseta So...
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
📅 08.10.2026 👁️ 4
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
Þung orð hafa verið látin falla um leigubremsufrumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Seðlabankastjóri hefur lýst leigubr...
Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir
Krónutölugjöld sem hafa áhrif á vísitölu munu til að mynda ekki hækka um meira en 2,5 prósent, að kílómetragjaldi undanskildu, og á það sama við þær g...
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað Ág­úst Bjarni Garð­ars­son hef­ur keypt bæj­ar­blað­ið Fjarð­ar­frétt­ir í gegn­um ráð­gj...
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum
📅 08.10.2026 👁️ 4
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum Skuld­sett heim­ili fá sam­tals 1,3 millj­arða króna í ein­skiptis­vaxta­bæt­ur verði...
Sextán ára dómur yfir Margréti Löf staðfestur
📅 08.10.2026 👁️ 4
Sextán ára dómur yfir Margréti Löf staðfestur
Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms um 16 ára fangelsi yfir Margréti Höllu Hansdóttur Löf, fyrir að hafa ráðið föður sínum bana á heimili þeirra...
Ók lyfjaður á gangandi veg­faranda - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ók lyfjaður á gangandi veg­faranda - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en málinu er ekki lýst frekar. Í sama hverfi var tilkynnt um innbrot og einnig tilkynnt um...
Why the search warrants were deemed unlawful and what happens next?
📅 08.10.2026 👁️ 4
Why the search warrants were deemed unlawful and what happens next?
Special correspondent Lucy Manning explains why the Hight Court has ruled that search warrants used to search Mr Mountbatten-Windsor's home were unlaw...
Christa Pike komin á fætur eftir misheppnaða aftöku
📅 08.10.2026 👁️ 4
Christa Pike komin á fætur eftir misheppnaða aftöku
Christa Pike, sem lifði af tvær aftökutilraunir með banvænni sprautu í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum, er komin á fætur og farin að ganga um sjúkrasto...
Allt brjálað í fjölbýlishúsi í miðborginni eftir að leyft var að veitingastaður yrði opnaður
📅 08.10.2026 👁️ 4
Allt brjálað í fjölbýlishúsi í miðborginni eftir að leyft var að veitingastaður yrði opnaður
Eigendur fjögurra íbúða í fjölbýlishúsi við Vesturgötu í miðborg Reykjavíkur hafa lagt fram kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna...
Nauðgað í kosningabaráttu – Vaknaði og sá manninn draga út skaufann
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nauðgað í kosningabaráttu – Vaknaði og sá manninn draga út skaufann
Frambjóðandi Demókrataflokksins í Arizóna fylki greinir frá því að henni hafi verið nauðgað í kosningabaráttu. Ókunnur maður rotaði hana og byrjaði sí...
Myndband sýnir ungmenni skemma bíl í Stórholti
📅 08.10.2026 👁️ 4
Myndband sýnir ungmenni skemma bíl í Stórholti
Fjölmiðlar hafa í dag greint frá skemmdaverkum á bílum í Vesturbæ Reykjavíkur en hakakross var rispaður í hurð eins bílsins. Þrír bílar voru rispaðir ...
Bein út­sending: For­sætis­ráð­herra boðar til blaða­manna­fundar - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Bein út­sending: For­sætis­ráð­herra boðar til blaða­manna­fundar - Vísir
Samkomulag náðist á milli VR, Fagfélaganna og LÍV annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar um að kjarasamningar héldu rétt fyrir klukkan fjög...
Dag­skrá af­lýst í dag og ó­ljóst hvernig ræðukeppnin fer fram - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Dag­skrá af­lýst í dag og ó­ljóst hvernig ræðukeppnin fer fram - Vísir
„Við eigum eftir að senda tölvupóst á nemendur og forráðamenn,“ segir Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor MR, í samtali við Vísi og bætir við að nemen...
Bilun í símkerfi hefur víðtæk áhrif í Noregi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Bilun í símkerfi hefur víðtæk áhrif í Noregi
Umfangsmikil bilun er í norska farsímakerfinu. Vegna bilunarinnar getur reynst erfitt fyrir almenning að ná sambandi við neyðarnúmer viðbragðsaðila.Bi...
Samningar náðust á síðustu mínútu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Samningar náðust á síðustu mínútu
„Það er tvennt sem kemur til til þess að ég geti gengið sátt frá borði,“ sagði Halla Gunnarsdóttir formaður VR stuttu eftir að tilkynnt var að kjarasa...
Kjarasamningar halda: Vaxtabótaauki meðal höfuðlausna
📅 08.10.2026 👁️ 4
Kjarasamningar halda: Vaxtabótaauki meðal höfuðlausna
Kjarasamningar halda: Vaxtabótaauki meðal höfuðlausna Vaxta­bóta­auki sem Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráð­herra lagði til skipti sköp­um við að...
Geta Íslendingar eignað sér nýja nóbelsverðlaunahafann? - „Mér skilst að þingmenn Miðflokksins séu búin að leggja inn fyrirspurn“
📅 08.10.2026 👁️ 4
Geta Íslendingar eignað sér nýja nóbelsverðlaunahafann? - „Mér skilst að þingmenn Miðflokksins séu búin að leggja inn fyrirspurn“
Eins og kunnugt er var tilkynnt í morgun að ljóðskáldið Anne Carson hefði hlotið nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Hún er frá Kanada en hefur undanfarin ...
Ferðamönnum frá Ísrael mismunað vegna uppruna á íslenskum veitingastað – Neitað um þjónustu og vísað á dyr
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ferðamönnum frá Ísrael mismunað vegna uppruna á íslenskum veitingastað – Neitað um þjónustu og vísað á dyr
Ónefndur veitingastaður á Íslandi gerðist sekur um mismunum á grundvelli þjóðernisuppruna síðsta sumar þegar pari frá Ísrael var neitað um þjónustu. Þ...
Margrét Löf heldur arfinum eftir föðurinn sem hún myrti
📅 08.10.2026 👁️ 4
Margrét Löf heldur arfinum eftir föðurinn sem hún myrti
Landsréttur staðfesti í dag 16 ára fangelsisvist Margrétar Höllu Hansdóttur Löf sem banaði föður sínum á heimili fjölskyldunnar við Súlunes á Arnarnes...
Sorgleg staðreynd um systurnar þrjár sem drukknuðu við strönd Brighton
📅 08.10.2026 👁️ 4
Sorgleg staðreynd um systurnar þrjár sem drukknuðu við strönd Brighton
Þrjár systur sem fundust látnar í sjónum við Brighton á Englandi í maí sviptu sig lífi, samkvæmt niðurstöðu réttarrannsóknar sem lauk í dag, 8. októbe...
Spjallið með Frosta Logasyni | Kolbeinn Stefánsson: Þegar pólitík ræður vísindunum – og fjölmiðlar gleypa allt
Alaska og Flóni hætt saman - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Alaska og Flóni hætt saman - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu en þau eru þó enn góðir vinir. Samband þeirra varð opinbert í apríl á þessu ári og höfðu þau verið vinir í dágóða st...
Staðfesta fyrsta dauðsfallið vegna ebólu í Kenía
📅 08.10.2026 👁️ 4
Staðfesta fyrsta dauðsfallið vegna ebólu í Kenía
Yfirvöld í Kenía hafa staðfest fyrsta dauðsfallið vegna ebólu-smits. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin staðfestir að tilfellið sé það fyrsta sem greinist af...