Bandero, skip Paul Watson samtakanna, hefur verið kyrrsett í Sundahöfn síðan á föstudagsmorgun eftir að Landhelgisgæslan og sérsveit ríkislögreglustjóra tóku yfir stjórn þess í kjölfar þess að Bandero reyndi að hefta för hvalveiðiskipsins Hvals 9 og hlýddi ekki fyrirmælum Gæslunnar.
Einn kærði ákvörðun lögreglu
Skipverjum hefur síðan þá verið meinað að fara frá borði, einn þeirra kærði þá ákvörðun lögreglu og að sögn Ásgeirs Þórs Ásgeirssonar, aðstoðarlögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, er úrskurðar að vænta í dag.
Hann segir að áhöfnin geti útvegað sér vistir eftir þörfum og þá hafi lögmenn skipverja komið um borð.
Ásgeir segir að verið sé að fara yfir gögn, sem eru meðal annars upptökur og framburður skipverja á Bandero og á Hval 9.
Lögregla fór fram á brottvísun allra skipverjanna, sem eru 21 talsins og Útlendingastofnun tekur nú afstöðu til kröfu lögreglu.
Málið í forgangi
Kristín Völundardóttir forstjóri Útlendingastofnunar segir málið í forgangi. „Við höfum fengið mál skipverjanna til meðferðar og það hefur verið í vinnslu hjá okkur um helgina.“
Hafið þið komist að niðurstöðu? „Nei, það fengu allir tilkynningu um þá málsmeðferð sem er í gangi um helgina, það var veittur mjög skammur frestur til andmæla eða koma með athugasemdir. Sá frestur er liðinn þannig að við erum að vinna hvert og eitt mál núna. Ég held mér sé óhætt að fullyrða að þetta verði búið fyrir vikulok.“
Skipverjunum var gefinn þriggja daga andmælafrestur, sem er liðinn - nýttu einhverjir sér hann? „Ég get ekki upplýst um það.
Er þetta mál fordæmalaust að einhverju leyti? „Það sem er sérstakt í þessu máli er fjöldinn og að hin meintu brot eru að gerast úti á sjó.“
Ríkislögreglustjóri ákveður hvernig fólkið fer, ef það fer
Verði fólkinu vísað úr landi, þá er það ríkislögreglustjóra að ákveða með hvaða hætti það verður, hvort sem það verður með flugvél eða hvort fólkið fái að sigla á brott á Bandero.
Skipið var kyrrsett eftir að Samgöngustofa gerði svokallað hafnarríkiseftirlit á því á föstudaginn, en hafnarríkiseftirlit er lögbundið eftirlit með erlendum skipum í innlendum höfnum.
Skipið vantaði skírteini og skráningar
„Bandero var kyrrsett á þeim forsendum að skipið vantaði það sem heitir alþjóðlegt mælibréf auk annarra atriða sem varða nauðsynleg siglingagögn, lögbundnar skoðanir og skyldubundnar skráningar. Skorturinn á þessu skírteini einn og sér leiddi til kyrrsetningarinnar,“ segir Þórhildur Elín Elínardóttir samskiptastjóri Samgöngustofu.
Hún segir ekki hægt að segja til um hvort líklegt sé að skipið hafi fengið að sigla úr höfn hingað til lands án þess að vera með lögbundnar skoðanir, skráningar, siglingagögn og alþjóðlega mælibréfið.
Kyrrsetningu verði aflétt þegar útgerð skipsins framvísi þeim gögnum sem vanti.