Tveir bandarískir ferðamenn særðust í hnífaárás í Aþenu á Grikklandi í morgun. Árásarmaðurinn réðst á fólkið nálægt inngangi að Akrópólissafni við rætur Akrópólishæðar.
Lögregla handtók árásarmanninn og ferðamennirnir voru fluttir á sjúkrahús, maðurinn með alvarlega áverka á handlegg og konan með minniháttar áverka á fótlegg.
Árásarmaðurinn virtist glíma við geðræn vandamál að því er haft eftir lögreglu í frétt AP.
Árásir á götum úti eru sjaldgæfar á Grikklandi.
Akrópólishæð er gríðarvinsæll ferðamannastaður og eitt frægasta kennileiti Aþenu. 4,6 milljónir ferðamanna heimsóttu hæðina í fyrra.