Tæknifyrirtækið Anthropic hefur tekið tvö öflug gervigreindarlíkön sín úr notkun. Yfirvöld í Bandaríkjunum skipuðu fyrirtækinu að loka fyrir aðgang erlendra ríkisborgara að líkönunum og segja þau geta stefnt þjóðaröryggi í hættu.
Bannið nær einnig til erlendra ríkisborgara í Bandaríkjunum og erlendra ríkisborgara í starfsliði fyrirtækisins.
Í tilkynningu frá Anthropic segir að lokað hafi verið fyrir notkun á gervigreindarlíkönunum Fable 5 og Mythos 5. Fyrirtækið hafi ekki fengið frekari lýsingar á því hvernig líkönin ógni þjóðaröryggi.
Starfsfólk fyrirtækisins skilur það sem svo að stjórnvöld telji að hægt sé að komast fram hjá varnagla í öryggisstillingum gervigreindarlíkana Anthropic sem koma í veg fyrir að þau séu notuð til að finna veikleika í öðrum hugbúnaði.
Í tilkynningu Anthropic eru viðskiptavinir fyrirtækisins beðnir afsökunar á þessum óþægindum. „Við teljum að þetta byggi á misskilningi og við vinnum að því að opna aftur fyrir notkun eins fljótt og mögulegt er,“ segir þar enn fremur.
Í frétt Reuters segir að sérfræðingar hafi varað við því að líkönin geti auðveldað netþrjótum að gera netárásir, til dæmis gegn bönkum. Þeir reiði sig á flókin, samhangandi kerfi sem eru oft áratugagömul.
Það hefur andað tiltölulega köldu milli ríkisstjórnar Donalds Trumps og Anthropic. Fyrr á þessu ári meinaði fyrirtækið Bandaríkjaher að nota gervigreindarlíkön sín til að hafa eftirlit með bandarískum ríkisborgurum eða í hernaði, til dæmis við að velja skotmörk.