Bandaríska utanríkisráðuneytið gaf út viðvörun í nótt á X til bandarískra ríkisborgara víða um heim vegna stríðsátakanna við Íran og aukinnar spennu í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjamenn utan Mið-Austurlanda eru hvattir til að endurskoða ferðalög um Mið-Austurlönd. Varað er við aukinni hættu á árásum á sendiráð eða staði sem tengjast Bandaríkjunum víða um heim.
Árásir héldu áfram í nótt
Bandaríski herinn gerði árásir 10. nóttina í röð á skotmörk Írana í nótt, meðal annars á stjórnstöðvar hersins, drónaskotstaði og loftvarnakerfi Írana.
Árás var gerð á tankskip úti fyrir ströndum Ómans í nótt. Bresk siglingarmálastofnun, The UK Maritime Trade Operations Agency, greindi frá árásinni en ekki liggur fyrir hver gerði árás á skipið. Skipið var um átta sjómílur norðaustur af Limah í Óman.
Í tilkynningu frá íranska byltingarverðinum, sem greint var frá á ríkisfjölmiðli í Íran, segir að byltingarvörðurinn hafi stöðvað tvö skip sem reyndu að sigla suðurleiðina um Hormússund.
Íranski byltingarvörðurinn heldur því fram að suðurleiðin sé hættuleg sjóleið og hafa reynt að beina ferð skipa um norðurleiðina eða Íransmegin við sundið. Íranar segjast einnig hafa gert árásir á hernaðarinnviði bandaríska hersins í Barein og Kúveit.
Bandaríska varnarmálaráðuneytið Pentagon sagði í gær að tæplega 100 hermenn hefðu særst í árásum Írana undanfarnar tvær vikur.
Diplómatísk samskipti enn í gangi
Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, Esmaeil Baqaei, segir að samskipti séu í gangi við stjórnvöld í Washington í gegnum milligöngumenn.
Innanríkisráðherra Írana, Eskandar Momeni, er í Islamabad í Pakistan þar sem hann fundar með forsætisráðherra Pakistan, Shehbaz Sharif, og yfirmanni pakistanska hersins, Asim Munir.
Þá fundar líbanski forsetinn Joseph Aoun með Donald Trump Bandaríkjaforseta í dag. Ísraelar hafa gert þá kröfu að Hezbollah-samtökin verði afvopnuð áður en Ísraelar draga hersveitir sínar til baka frá Suður-Líbanon.
Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um fjölda særðra hermanna og um diplómatísk samskipti.