Ferjan Baldur og Herjólfur munu báðar sigla til og frá Vestmannaeyjum frá og með næsta mánudegi. Þannig verður því háttað meðan unnið er að viðgerð á einni vél sem bilaði í Herjólfi í apríl.
Fjöldi manns kom saman í Höllinni í Vestmannaeyjum á fundi um stöðu hafnarinnar síðdegis.
„Það sem við höfum beðið eftir sem eru frumniðurstöður úr breytingum á höfninni. Við Vestmannaeyingar bíðum enn eftir að höfnin verði kláruð,“ sagði Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri að fundi lokum.
Þar vísar hún til rannsóknar dönsku straumfræðistofunnar á nýtingu jafnarinnar. Íris segir að frumniðurstöður lofi góðu.
„Það þarf að halda áfram að vinna að þeim og á meðan þá þarf að tryggja það að það séu nægir fjármunir til að dýpka og mæta því sem þarf að gera til að halda höfninni gangandi.“