Sjálfstæðisflokkurinn gengur til meirihlutasamstarfs með Framsóknarflokknum í Kópavogi þrátt fyrir að hafa hreinan meirihluta í bæjarstjórn. Ásdís Kristjánsdóttir verður áfram bæjarstjóri. Hún segir einhug hafa verið um að halda samstarfinu áfram.
„Það hefur gengið vel að vinna með framsóknarflokknum og sérstaklega Orra og það ríkir traust á milli okkar. Og við töldum að það væri til hagsbóta fyrir ekki bara Kópavogsbæ heldur Kópavogsbúa að þessir tveir flokkar myndu halda áfram að vinna næstu fjögur árin og byggja upp okkar bæ og gera hann enn betri með okkar áherslum,“ segir Ásdís.
Flokkarnir tveir kynntu meirihlutasáttmála sinn eftir hádegi við Geðræktarhús Kópavogs. Í sáttmálanum eru sjö megináherslur og fimmtíu og fimm forgangsverkefni. Meðal annars vill meirihlutinn skoða möguleika á uppbyggingu eigin hitaveitu.
„Við höfum verið að sjá það að hitaveitureikningurinn hefur verið að hækka um tugi prósenta. Þannig að við viljum kanna möguleikann hvort við getum aftengst Reykjavík og gert þetta á okkar eigin forsendum. Það eru vísbendngar þess efnis að við gætum fundið heitt vatn í upplandinu. Fyrsta skefið er að kanna hvort þetta sé möguleiki fyrir hendi.“
Sérstök áhersla á leikskólamálin
Orri Vignir Hlöðversson, oddviti Framsóknar í Kópavogi, tekur í sama streng. Hann segir öruggan og góðan rekstur til þess að standa undir grunnþjónustu bæjarfélagsins liggja til grundvallar.
„Við munum leggja áherslu á grunnskólamálin sérstaklega núna. Við munum leggja áherslu á velferðarmálin og hala áfram að standa vörð um leikskólamálin sem við stóðum okkur svo vel í á síðasta kjörtímabili. Sama má segja um menningarmálin sem eru í örum vexti og svo framvegis.“