Austlægar áttir ráða ríkjum á landinu í dag með dálítilli rigningu, en í nótt á að draga úr rigningu og lægja. Hiti verður á bilinu 10 til 16 stig næstu daga, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:
Í dag verður austlæg átt 3-8 m/s, en 8-13 m/s allra syðst. Dálítil rigning af og til á sunnanverðu landinu, en þurrt norðanlands. Eftir hádegi stöku skúrir norðvestantil og bætir í rigningu sunnanlands í kvöld, en lengst af þurrt á Norðausturlandi. Hiti 11 til 16 stig. Lægir í nótt og dregur aðeins úr vætu.
Á morgun verður hæg breytileg átt. Dálítil rigning víða um land, en styttir upp austanlands eftir hádegi. Snýst í vestlæga átt 5-10 undir kvöld og þá styttir einnig upp vestantil. Hiti breytist lítið.
Á fimmtudag og föstudag er útlit fyrir suðvestanátt með skúrum, en lengst af þurrt austan- og suðaustantil. Hiti yfirleitt 10 til 15 stig.