Kínverski herinn starfar nærri því daglega nærri Taívan en strandgæslan hefur spilað sífellt stærri rullu í þeim aukna þrýstingi sem Kínverjar beita Taívana. Þeim þrýstingi er ætlað að grafa undan vörnum eyríkisins með því að þreyta Taívana með auknu álagi.
Þá segja Taívanar að Kínverjar hafi breytt herskipum í strandgæsluskip og málað þau í litum Strandgæslunnar. Stjórnendur þessara skipa hafa sent skilaboð til skipstjóra flutningaskipa og annarra skipa sem verið er að sigla til Taívan og krefja þá upplýsinga um hvert þeir séu að fara og hvaðan þeir séu að koma.
Samkvæmt opinberum tölum sem vitnað er í í frétt Reuters greindust 55 kínversk skip nærri Taívan í maí. Það markar 83 prósenta aukningu frá maí en 120 prósenta aukningu frá júní í fyrra.
Ráðamenn í Taívan segja umsvif Kínverja kringum eyjuna bera þess merki að þeir séu að undirbúa það að skera á birgðalínur Taívan og koma í veg fyrir að þeim geti borist aðstoð í tilfelli innrásar frá Kína.
Einn yfirmanna Strandgæslu Taívan sagði blaðamönnum í morgun að ef Kínverjar reyndu að setja eyríkið í herkví hefðu Taívanar þegar undirbúið og æft viðbrögð við því. Mikil áhersla yrði lögð á að tryggja birgðalínurnar.
Segjast ætla að eignast Taívan og jafnvel með valdi
Eins og frægt er gera Kínverjar tilkall til Taívan og hefur Xi heitið því að sameina Kína og Taívan og gera það með valdi ef svo þarf. Hann er sagður hafa gert það að markmiði sínu að ná völdum á Taívan og hefur hann sagt að það markmið megi ekki enda á höndum komandi kynslóða.
Undanfarin ár hafa Kínverjar beitt Taívan sífellt meiri þrýstingi með því markmiði að grafa undan vörnum ríkisins. Herafli Kína hefur sömuleiðis gengist undir mikla nútímavæðingu og uppbyggingu en Xi er sagður hafa skipað forsvarsmönnum hersins að vera tilbúnir fyrir mögulega innrás í Taívan árið 2027. Það ár mun marka aldarafmæli kínverska hersins.
Þá hefur Xi staðið í umfangsmiklum hreinsunum meðal æðstu herforingja Kína á undanförnum árum.
Sjá einnig: Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins
Taívanar segjast sjálfstæðir og segjast ætla að verja frelsi sitt og lýðræði. Sjálfstæðissinnum hefur vaxið ásmegin í Taívan á undanförnum árum en Taívanar hafa aldrei lýst yfir formlegu sjálfstæði.
Ráðamenn í Taívan vinna nú að því að styrkja varnir ríkisins og vilja sérstaklega fjölga eldflaugum sínum og öðrum ódýrum en skilvirkum og banvænum vopnum. Þessar áætlanir hafa tekið mikið mið af átökunum í Úkraínu og Íran.