Mæðgurnar Anna Jörgensdóttir og Bríet Sigríður Karlsdóttir auglýsa á samfélagsmiðlum eftir þjóðbúningi í eigu þeirrar síðarnefndu sem glataðist í miðborg Reykjavíkur að kvöldi 17. júní.Í færslu sem dreift hefur verið víða á Facebook greinir Anna frá því að þjóðbúningurinn hafi verið í poka merktum Húrra-Reykjavík þegar hann týndist eða var tekinn í misgripum á svæðinu við Laugaveg 145 og Mjölnisholt. Ekki sé hægt að útiloka að pokinn hafi týnst eða orðið eftir í leigubíl sem ekið hafi úr miðbænum að Valshlíð á Hlíðarenda.
Auglýsa eftir þjóðbúningi sem týndist á 17. júní