Auglýsa eftir sjö prestum

Auglýsa eftir sjö prestum

Auglýsa eftir sjö prestum

guðrún karls helgudóttir biskup
Guðrún Karls HelgudóttirEr biskup Íslands
Mynd: Biskupsembættið

Sjö prestsstörf hjá Þjóðkirkjunni hafa verið auglýst laus til umsóknar á vef kirkjunnar. Um er að ræða óvenju margar auglýsingar á sama tíma samkvæmt tilkynningu Þjóðkirkjunnar.

Störfin sem auglýst eru eru fjölbreytt og víða um land og meira að segja í útlöndum. Þar á meðal er staða sendiráðsprests í Danmörku með aðsetur í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn. Þá eru tvær prestsstöður lausar í Þingeyjarprestakalli, auk stöðu prests í Árborgarprestakalli.

Einnig er auglýst tímabundin afleysing í Þorlákshafnarprestakalli. Þá leitar Þjóðkirkjan að presti í Austfjarðaprestakalli með sérstakar skyldur gagnvart Norðfjarðar-, Eskifjarðar- og Reyðarfjarðarsóknum. Loks er auglýst eftir héraðspresti til starfa í Vestfjarðaprófastsdæmi með sérstaka þjónustu við Hólssókn í Bolungarvík.

Þjóðkirkja bendir einnig á að meðal síðustu verkefna Jónu Finnsdóttur á Biskupsstofu var að vinna að auglýsingu stöðu héraðsprests í Bolungarvík en hún er sjálf frá Bolungarvík. Hún lét af störfum sem mannauðsstjóri í vikunni.

#auglýsa #eftir #prestum #sjö


Upprunaleg slóð:
https://mannlif.is/greinar/auglysa-eftir-sjo-prestum/

Fatal error: Uncaught Error: Call to undefined function getRecentArticles() in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php:260 Stack trace: #0 /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php(36): showArticlePage() #1 {main} thrown in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php on line 260