Skipverji sem er ákærður í Dettifossmálinu svokallaða segir að hann og samverkamaður hans hafi átt að fá 2,5 milljónir króna fyrir þátttöku í umfangsmiklu fíkniefnasmygli með gámaskipinu Dettifossi. Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði frá byrjun mánaðar sem hefur verið birtur.
Héraðssaksóknari gaf út ákærur á hendur fjórum mönnum 7. júlí í tengslum við smygl á rúmum 14 lítrum af amfetamínbasa til landsins með Dettifossi.
Sex voru í fyrstu handteknir eftir að lögregla og tollgæsla fóru um borð í Dettifoss í Sundahöfn 6. apríl. Þremur var fljótlega sleppt en hinir þrír úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Sá fjórði var svo hnepptur í varðhald 24. apríl.
Í gæsluvarðhaldsúrskurði yfir skipverja segist hann hafa óttast samverkamann sinn sem fór með honum um borð í skipið. Háttsemin varðar 173. grein hegningarlaga og getur varðað allt að tólf ára fangelsi.
Haft er eftir skipverjanum að hann og samverkamaðurinn hafi farið í land og hitt tvo menn og eina konu sem hafi afhent þeim efnin. Þeir hafi svo farið með efnin um borð í skipið og við komuna til Íslands hafi skipverjinn sjálfur farið með efnin frá borði.
Götuvirði hefði numið hundruðum milljóna
Samverkamaður þeirra hafi hins vegar séð um að skipuleggja innflutninginn og sagt þeim hvað þeir ættu að gera. Þá hafi hann greint frá því að þeir hafi átt að fá 2,5 milljónir króna á mann fyrir verknaðinn.
Amfetamínbasinn var 47-48% að styrkleika og miðað við það má áætla að úr vökvanum hefði mátt framleiða hátt í fimmtíu kíló af hreinu amfetamíni í duftformi. Götuvirði þess hefði því að öllum líkindum numið hundruðum milljóna króna.