Átt­ræður maður dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga skjól­stæðingi - Vísir

Átt­ræður maður dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga skjól­stæðingi - Vísir

Átt­ræður maður dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga skjól­stæðingi - Vísir

Var dómurinn  kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands vestra þann 10. júlí en nauðgunin fór fram árið 2023. Júlíus, sem er á áttræðisaldri, vann sem verktaki á vegum sveitarfélagsins Skagafjarðar og meðal þess sem var í hans verkahring var að færa skjólstæðingum stuðnings- og stoðþjónustu sveitarfélagsins heitan mat og aka þeim til og frá dagvistuninni.

Kynlíf í skiptum fyrir greiðann

Konan á mikla sögu um áfengisneyslu og fram kom í gögnum málsins að skilningur hennar og geta til að veita samþykki fyrir kynlífi væru skert vegna andlegrar fötlunar hennar og vegna stöðu sinnar væri hún ekki í stakk búin til að setja eðlileg mörk í daglegu lífi.

Þá kemur einnig fram að Júlíus sé á einhverfurófi en að það hamli honum ekki og að ekkert gefi til kynna að hann eigi í sérstökum erfiðleikum með að skilja hvort viðkomandi vilji eða vilji ekki stunda kynlíf.

Konan sagði starfsmanni félagsþjónustunnar fyrst frá því í október 2023 að hún hefði beðið Júlíus um að kaupa fyrir sig rauðvín en að hann hefði þá ætlast til þess að hún stundaði með honum samfarir í skiptum fyrir greiðann.

Í skýrslu Júlíusar fyrir dómi segist hann hafa þekkt konuna í um þrjátíu og fimm ár en hann sagði þau hafa verið mjög góða vini sem döðruðu af og til en að það væri af beggja hálfu. Þá kvað hann þau hafa stundað samræði á vormánuðum 2023 og að frumkvæði hafi verið þeirra beggja.

Sáðfrumur fundust á rúminu

Hann hafði áður neitað sök við yfirheyrslur lögreglu og sagðist ekki hafa haft kynmök við konuna. Sýni sem voru tekin af sæng og dýnuhlíf konunnar voru þó send í greiningu til Svíþjóðar þar sem sæðisfrumur með hans DNA fundust.

Aðspurður hvernig sæðisfrumur úr honum enduðu uppi á rúmi konunnar sagðist Júlíus ekki eiga nein svör við því. Það var svo sem fyrr segir fyrir dómi sem hann játaði að hafa haft samræði við konuna. Hann neitaði því þó fyrst að þau hefðu stundað kynmök oftar en þetta eina skipti en kvað það svo seinna að það hafi kannski verið alls þrisvar.

Fyrir dómi sagði konan frá því hvernig hann hafi verið búinn að fara nokkrar ferðir eftir áfengi fyrir hana þegar hann minntist fyrst á það að vilja fá kynlíf fyrir greiðann. Hann hafi farið fínt í það fyrst og ekki beint krafist kynlífs en nefnt það og beðið hana um að hugsa málið.

Hún hafi ekki getað sagt nei en þó ekki litið á þetta sem nauðgun „því það sé þegar maður þröngvi fram vilja sínum“ en hugsað með sér að það myndi koma sér illa fyrir hana ef hún hætti að fá þjónustu frá honum og var hrædd um að hann kynni að hætta að veita hana.

Þá sagðist hún einnig hafa upplifað það sem svo að hún þyrfti að gegna honum, kannski ekki sama dag en þá næsta dag í staðinn. Það hafi verið erfitt að segja nei við þessari beiðni hans. Ef hún neitaði hafi hann sagst eiga inni hjá henni.

Greiðarnir ekki í hans verkahring

Hann fór oft með greiðslukortið hennar í vínbúðina og greiddi með því en í önnur skipti sagðist konan ekki hafa átt nóg fyrir víni og að í þau skipti hafi hann viljað að hún stundaði samfarir með honum. Júlíus sagði lögreglu að hún hefði borgað honum í peningum fyrir vínkaupin, tvö til þrjú þúsund krónur fyrir hverja ferð.

Líkt og fyrr hefur komið fram er konan andlega fötluð og því er hún sögð standa höllum fæti gagnvart öðrum og verulega háð utanaðkomandi stuðningi sem geri hana enn þá meira varnarlausa, sérstaklega gagnvart fólki í valdastöðu eða þeim sem hún þurfi á að halda.

Hún sagði í samtali við vitni að henni líkaði ekki vel við sjálfa sig eftir að hafa gefið eftir, hún væri með moral og kenndi sjálfri sér um. Hún hafi alveg eins verið að „misnota hann“ með því að senda hann í vínbúð þó að það væri ekki í hans verkahring.

Fyrir dómi kvaðst hún ekki muna hvort þau hefðu stundað kynlíf oftar en þrisvar né hvenær kynferðisleg samskipti hófust fyrst né hvenær þeim lauk en hún glímir við skert minni.

Þá er haft eftir forstöðumanni stuðnings- og stoðþjónustu að viðkomandi hafi tekið eftir því að konan hafi orðið meyr eftir frásögnina, eins og það hefði verið léttir að hafa sagt frá þessu.

Svaf frekar í hægindastól

Aðrir starfsmenn sögðu allir sömu sögu um að konan hafi skömmu eftir umrætt atvik hætt að sofa í sínu eigin rúmi. Hún hafi frekar sofið í sófa í stofunni eða í hægindastól. Hún hafi jafnframt virst kvíðin, vör um sig og óörugg. Þá sagðist hún ekki vilja að fleiri lentu í sömu stöðu gagnvart Júlíusi og hún en hún er að eigin sögn alkóhólisti sem gerði allt fyrir rauðvínið sitt.

Dómurinn telur framburð Júlíusar hafa verið ótrúverðugan vegna þess meðal annars að hann hafi fyrst um sinn neitað að hafa haft samræði við brotaþola og neitað að afhenda lífsýni, svo þurft hafi úrskurð til þess. Fyrir dómnum hafi hann aftur á móti gengist við því að hafa haft samræði við brotaþola.

Þá er einnig lögð áhersla á að ótrúverðugt sé að hann hafi ekki vitað um skerðingar brotaþola en Júlíus lýsti konunni sem klárri og kvaðst ekki vita um greiningar hennar fyrir dómi. Hann kvaðst sömuleiðis ekki hafa litið svo á að hún glímdi við áfengissýki.

Framburður konunnar þykir aftur á móti trúverðugur, stöðugur og heildstæður þrátt fyrir fötlun hennar og að innra samræmis hafi þar gætt. Hún hafi í hvert skipti greint frá því að henni hafi ekki fundist hún geta sagt nei þegar Júlíus fór fram á kynlíf við hana.

Við ákvörðun refsingar var litið til þess að Júlíus hafi nýtt sér yfirburðastöðu sína, áfengissýki konunnar og veikleika hennar til þess að brjóta gegn kynfrelsi hennar. Honum var gert að greiða ríflega sjö og hálfa milljón í sakakostnað sem og tvær milljónir til konunnar í miskabætur. Var hann dæmdur í þriggja ára fangelsi.

#dæmdur #maður #ára #áttræður #þriggja

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262910334d/madur-a-attraedisaldri-daemdur-i-thriggja-ara-fangelsi-fyrir-naudgun

📰 Aðrar fréttir

Dæmdur fyrir að flytja inn lítt þekkt efni sem hann taldi vera löglegt
📅 15.10.2026 👁️ 1
Dæmdur fyrir að flytja inn lítt þekkt efni sem hann taldi vera löglegt
Héraðsdómur Vesturlands hefur sakfellt mann fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni. Flutti maðurinn efni til landsins sem er líklega ekki mikið þek...
Þakk­lát fyrir að vera á lífi eftir að járn­plata flaug inn líkt og hnífur - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 0
Þakk­lát fyrir að vera á lífi eftir að járn­plata flaug inn líkt og hnífur - Vísir
Svo virðist sem að þakplata hafi losnað af iðnaðarhúsi í næstu götu og lent á húsinu með svo miklu afli að hún fór í gegnum útvegginn og þvert yfir íb...
Bus hits train stopped on French side of  Channel Tunnel, with 19 injured
📅 15.10.2026 👁️ 0
Bus hits train stopped on French side of Channel Tunnel, with 19 injured
Two people were severely injured and evacuated by helicopter but no one's life appeared to be in danger, officials said.
Sárt að horfa upp á Trump velja nýjan samherja
📅 15.10.2026 👁️ 0
Sárt að horfa upp á Trump velja nýjan samherja
Samband forseta Úkraínu og Bandaríkjanna hefur súrnað síðustu vikuna eftir að Trump samdi við Pútín um kaup á dísilolíu. Þegar Úkraínuforseti gagnrýnd...
„Bara 15. októ­ber og við erum auð­vitað uggandi yfir vetrinum“ - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 2
„Bara 15. októ­ber og við erum auð­vitað uggandi yfir vetrinum“ - Vísir
Í tilkynningu frá Vegagerðinni í gær kom fram að ölduhæð myndi ná hámarki um klukkan 21 í gær og að við svipaðar aðstæður í desember í fyrra hefði flæ...
Segir stærsta óvin sinn stundum hafa verið sjálfan sig og eigið sjálfstal: „Virði mitt er annað og meira heldur en bara tónlistarmaðurinn Friðrik Dór“
📅 15.10.2026 👁️ 2
Segir stærsta óvin sinn stundum hafa verið sjálfan sig og eigið sjálfstal: „Virði mitt er annað og meira heldur en bara tónlistarmaðurinn Friðrik Dór“
Friðrik Dór Jónsson hefur farið mikinn í íslensku tónlistarlífi á rúmlega 15 ára tónlistarferli. En þótt hittarnir hafi verið margir hefur leiðin ekki...
Segir innri vanda þingflokks Viðreisnar alvarlegan og að Þorgerður Katrín hafi ekki hlustað á áhyggjur hans
📅 15.10.2026 👁️ 2
Segir innri vanda þingflokks Viðreisnar alvarlegan og að Þorgerður Katrín hafi ekki hlustað á áhyggjur hans
Um fátt hefur verið fjallað meira í fréttum dag en óvænta úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar. Jón var í viðtali við Kastljós á RÚV nú í kvöld ...
Fiskeldi gæti skapað 10 til 15 störf á Seyðisfirði
📅 15.10.2026 👁️ 2
Fiskeldi gæti skapað 10 til 15 störf á Seyðisfirði
Áformum Kaldvíkur um sjókvíaeldi í Seyðisfirði hefur verið mótmælt og samkvæmt skoðanakönnun er meirihluti íbúa þar mótfallinn fiskeldi í firðinum. Lí...
Hvetur ríki til að binda enda á „stríðið gegn náttúrunni“
📅 15.10.2026 👁️ 2
Hvetur ríki til að binda enda á „stríðið gegn náttúrunni“
Hvetur ríki til að binda enda á „stríðið gegn náttúrunni“ Alþjóð­leg skýrsla segir að stefna stjórn­valda dugi ekki til að vernda 30 pró­sent lands og...
Why Harry and Meghan's UK relaunch felt so much like a royal engagement
📅 15.10.2026 👁️ 2
Why Harry and Meghan's UK relaunch felt so much like a royal engagement
The Duchess of Sussex has not done anything like the day of events in Nottingham for several years on British soil.
„Sætti mig ekki við að vera í óheilbrigðum aðstæðum“
📅 15.10.2026 👁️ 2
„Sætti mig ekki við að vera í óheilbrigðum aðstæðum“
Jón Gnarr þingmaður segir að langvarandi skortur hafi verið á skýrri forystu innan þingflokks Viðreisnar.Hann sagði sig í dag úr þingflokki Viðreisnar...
London suburban housing project wins top UK architecture award
📅 15.10.2026 👁️ 3
London suburban housing project wins top UK architecture award
Lion Green Road in Coulsdon was recognised for the way it responds to its surroundings.
Segir ljóst að Jón hafi einn þorað að tala opinberlega um það sem sé altalað innan Viðreisnar
📅 15.10.2026 👁️ 3
Segir ljóst að Jón hafi einn þorað að tala opinberlega um það sem sé altalað innan Viðreisnar
Össur Skarphéðinsson fyrrum formaður og ráðherra Samfylkingarinnar segir ljóst að úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar sé mikið áfall fyrir flok...
Hvað veistu um… þjóð­veginn frá Reykja­vík til Akur­eyrar? - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 3
Hvað veistu um… þjóð­veginn frá Reykja­vík til Akur­eyrar? - Vísir
Á leiðinni er margt og mikið sem ber fyrir augu: opið útsýni, fjöll, firðir, sveitir, ár og vötn, auk einhverra þéttbýlisstaða og víðáttumikilla heiða...
Úrsögn Jóns úr þingflokknum sé líkt og opið hjónaband
📅 15.10.2026 👁️ 3
Úrsögn Jóns úr þingflokknum sé líkt og opið hjónaband
Ólafur Þ. Harðarsson, prófessor emiritus í stjórnmálafræði, segir úrsögn Jóns Gnarrs úr þingflokki Viðreisnar hafa komið á óvart, atburðarrásin sé óve...
Spurði um úr­sögn Jóns fyrir hálfu ári - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 3
Spurði um úr­sögn Jóns fyrir hálfu ári - Vísir
Snorri reyndist auðvitað að hluta til sannspár en í dag tilkynnti Jón Gnarr að hann segði sig úr þingflokki Viðreisnar. Hann hefur þó ekki sagt sig úr...
Snorri reyndist að hluta til sann­spár um ör­lög Jóns - Vísir

Telur nokkuð ljóst að hún verði ekki kjörinn varaforseti ASÍ
📅 15.10.2026 👁️ 3
Telur nokkuð ljóst að hún verði ekki kjörinn varaforseti ASÍ
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Halla Gunnarsdóttir formaður VR bjóða sig báðar fram í embætti fyrsta varaforseta Alþýðusambands Íslands ...
„Auð­vitað er þessi at­burða­rás ekki mjög sam­einandi“ - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 3
„Auð­vitað er þessi at­burða­rás ekki mjög sam­einandi“ - Vísir
Þetta sagði Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, í samtali við fréttastofu skömmu eftir að tillaga miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um að fækka varafor...
Afhjúpa símtalið til Neyðarlínunnar eftir að leikkonan fannst meðvitundarlaus - „Guð minn góður“
📅 15.10.2026 👁️ 3
Afhjúpa símtalið til Neyðarlínunnar eftir að leikkonan fannst meðvitundarlaus - „Guð minn góður“
Leikkonan Hayden Panettiere fannst látin í Greenville í Suður-Karólínu þann 16. ágúst sl. Samkvæmt skýrslu dánardómstjóra lést hún af slysförum vegna ...
Maðurinn sem yfirbugaði farþegann agndofa yfir framburði hans – „Þá er hann sjúkur maður“
📅 15.10.2026 👁️ 3
Maðurinn sem yfirbugaði farþegann agndofa yfir framburði hans – „Þá er hann sjúkur maður“
Maður sem yfirbugaði og fjötraði farþega um borð í flugi Icelandair frá Baltimore til Keflavíkur 27. desember árið 2023 bar vitni í réttarhöldum yfir ...
Lenti í vanda vegna ferðamanna frá Ísrael og Palestínu - „Hvað á maður að gera í svona aðstæðum?“
📅 15.10.2026 👁️ 3
Lenti í vanda vegna ferðamanna frá Ísrael og Palestínu - „Hvað á maður að gera í svona aðstæðum?“
Þórarinn Leifsson teiknari, rithöfundur og leiðsögumaður greinir frá því í færslu á Facebook að hann hafi lent í töluverðum vandræðum með hóp ferðaman...
Komu að húsi sínu gjörónýtu eftir veðurofsann
📅 15.10.2026 👁️ 3
Komu að húsi sínu gjörónýtu eftir veðurofsann
Fjölmörg handtök eru framundan á Siglufirði næstu daga við að meta tjón og taka til eftir óveðrið sem gekk þar yfir í gær. Þök fuku af þremur húsum og...
Streeting hvetur Bandaríkin til að styðja Úkraínu áfram
📅 15.10.2026 👁️ 3
Streeting hvetur Bandaríkin til að styðja Úkraínu áfram
Varnarmálaráðherra Bretlands hvetur Bandaríkin til að styðja við Úkraínu. Spenna milli Bandaríkjanna og Úkraínu hefur aukist vegna olíukaupa Bandaríkj...
Fimm verkefnastjórar fengu störf sín aftur eftir uppsagnir
📅 15.10.2026 👁️ 4
Fimm verkefnastjórar fengu störf sín aftur eftir uppsagnir
Fimm verkefnastjórum sem hafði verið sagt upp hjá Reykjavíkurborg var boðið starf sitt aftur. Fjórir þeirra fengu boð um tímabundna ráðningu.Stöðurnar...
Dudus barði Diddy í fangelsinu – Á sjúkrahús með höfuðáverka
📅 15.10.2026 👁️ 4
Dudus barði Diddy í fangelsinu – Á sjúkrahús með höfuðáverka
Eiturlyfjabarón sem er kallaður Dudus veitti Diddy alvarlega höfuðáverka í slagsmálum í fangelsi í New Jersey. Var hann reiður reiður rapparanum vegna...
Hrunamannahreppur er sveitarfélag ársins 2026
📅 15.10.2026 👁️ 4
Hrunamannahreppur er sveitarfélag ársins 2026
Sveitarfélag ársins er árleg viðurkenning sem byggir á starfsánægju og starfsumhverfi starfsfólks sveitarfélaga. Gallup framkvæmir könnunina og Mannau...
Til­laga um að fækka vara­for­setum felld - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 4
Til­laga um að fækka vara­for­setum felld - Vísir
Af 290 atkvæðum féllu 174 með tillögunni og 111 gegn henni. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, studdi breytinguna og segir erfitt að sjá að þetta ferli...
Til­laga um að fækka vara­for­setum naum­lega felld - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 3
Til­laga um að fækka vara­for­setum naum­lega felld - Vísir
Af 290 atkvæðum féllu 174 með tillögunni og 111 gegn henni. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, studdi breytinguna og mætti mikilli andstöðu frá Sólveig...
Varaforsetum ASÍ verður ekki fækkað
📅 15.10.2026 👁️ 4
Varaforsetum ASÍ verður ekki fækkað
Tillaga miðstjórnar ASÍ um fækkun varaforseta úr þremur í einn var felld á landsþingi sambandsins rétt í þessu. Atkvæðagreiðslan var leynileg, sem er ...
„Þegar ég les bók líður mér eins og sagan sé allt“
📅 15.10.2026 👁️ 4
„Þegar ég les bók líður mér eins og sagan sé allt“
Melaskóli í Reykjavík sigraði Svakalegu lestrarkeppnina, annað árið í röð.Svakalega lestrarkeppnin er þriggja vikna lestrarátak fyrir krakka í 1.-7. b...
Banks say Healey is planning Budget tax raid on their profits
📅 15.10.2026 👁️ 4
Banks say Healey is planning Budget tax raid on their profits
Senior banking executives have told the BBC they expect to be "on the menu" in the chancellor's Budget tax later this month.
Styrkir til kaupa á nýjum rafbílum lækka
📅 15.10.2026 👁️ 4
Styrkir til kaupa á nýjum rafbílum lækka
Styrkir til kaupa á nýjum rafbílum lækka frá 1. nóvember næstkomandi, samkvæmt nýrri reglugerð um Loftslags- og orkusjóð.Styrkur til nýrra fólksbíla f...
Afhjúpa símtalið til Neyðarlínuna eftir að leikkonan fannst meðvitundarlaus - „Guð minn góður“
📅 15.10.2026 👁️ 4
Afhjúpa símtalið til Neyðarlínuna eftir að leikkonan fannst meðvitundarlaus - „Guð minn góður“
Leikkonan Hayden Panettiere fannst látin í Greenville í Suður-Karólínu þann 16. ágúst sl. Samkvæmt skýrslu dánardómstjóra lést hún af slysförum vegna ...
Coca Cola á Íslandi og Slysavarnafélagið Landsbjörg endurnýja samstarfssamning
📅 15.10.2026 👁️ 4
Coca Cola á Íslandi og Slysavarnafélagið Landsbjörg endurnýja samstarfssamning
Coca-Cola á Íslandi og Slysavarnafélagið Landsbjörg halda áfram öflugu samstarfi. Hefur tryggt fræðslu og þjálfun ríflega 2.100 einstaklinga árlega un...
Minnast hins litríka Hafnfirðings Sigga Brynjólfssonar – „Svo notalegt að sjá hann ganga framhjá kirkjunni alla daga“
📅 15.10.2026 👁️ 4
Minnast hins litríka Hafnfirðings Sigga Brynjólfssonar – „Svo notalegt að sjá hann ganga framhjá kirkjunni alla daga“
Margrét Lilja Vilmundardóttir minnist Sigurðar Brynjólfssonar sem lést fyrir skemmstu. Sigurður, eða Siggi, eins og hann var kallaður var litríkur kar...
Hundruð milljóna fyrir jólakort og hraðasektir – Ólafur segir kröfuna út í hött
📅 15.10.2026 👁️ 4
Hundruð milljóna fyrir jólakort og hraðasektir – Ólafur segir kröfuna út í hött
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, gagnrýnir harðlega kröfu Íslandspósts um að skattgreiðendur bæti fyrirtækinu kostnað vegna ...
Jón Gnarr tjáir sig um ákvörðun sína - „Ég er ekki bara einhver jólasveinn sko“
📅 15.10.2026 👁️ 4
Jón Gnarr tjáir sig um ákvörðun sína - „Ég er ekki bara einhver jólasveinn sko“
Jón Gnarr mætti í Reykjavík síðdegis rétt í þessu þar sem hann greindi nánar frá ákvörðun sinni um að segja sig úr þingflokki Viðreisnar. Hann segir a...
Borað eftir heitu vatni í Laugardal í fyrsta sinn í 44 ár
📅 15.10.2026 👁️ 4
Borað eftir heitu vatni í Laugardal í fyrsta sinn í 44 ár
Við Engjateig í Laugardal á að bora eftir heitu vatni - þar er reyndar nánast örugglega heitt vatn enda nokkrar borholur í kring. Framkvæmdir hófust f...
„Mér fyndist bara miklu betra að spyrja ESA um það“
📅 15.10.2026 👁️ 4
„Mér fyndist bara miklu betra að spyrja ESA um það“
„Mér fyndist bara miklu betra að spyrja ESA um það“ Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar kröfð­ust svara um hvort Eft­ir­lits­stofnun EFTA muni draga mál...
Telur ofbeldi í grunnskólum innflutt – Vill skrá uppruna gerenda
📅 15.10.2026 👁️ 4
Telur ofbeldi í grunnskólum innflutt – Vill skrá uppruna gerenda
Páll Vilhjálmsson telur að vaxandi ofbeldi í grunnskólum Reykjavíkur tengist innflytjendum og vill að uppruni gerenda verði skráður skipulega. Hann ka...
Rýtingur í hjartað þegar fólk segist ekki vita hvar sannleikann sé að finna
📅 15.10.2026 👁️ 4
Rýtingur í hjartað þegar fólk segist ekki vita hvar sannleikann sé að finna
Christiane Amanpour, aðalfréttaskýrandi CNN í alþjóðamálum, segir það sem rýting í hjarta sér að heyra fólk segja að það viti ekki lengur hvar það get...
Zelensky kominn til Brussel - mætir á leiðtogafund ESB á morgun
📅 15.10.2026 👁️ 4
Zelensky kominn til Brussel - mætir á leiðtogafund ESB á morgun
„Það eru mikilvægir fundir skipulagðir í dag með framkvæmdastjóra NATO, Frakklandsforseta og forsætisráðherrum Póllands, Danmerkur og Belgíu,“ skrifað...
Ögur­stund fyrir fram­tíð Eflingar innan ASÍ - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 4
Ögur­stund fyrir fram­tíð Eflingar innan ASÍ - Vísir
Um er að ræða tillögu sem miðstjórn lagði fram á þinginu þrátt fyrir að vera ósammála um innihald hennar. Hún varðar það að fækka varaforsetum ASÍ úr ...
Siggi Chaplin allur - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 4
Siggi Chaplin allur - Vísir
Sigurður fæddist 19. mars 1948, sonur hjónanna Brynjólfs Brynjólfssonar vélstjóra og Jóhönnu Guðmundsdóttur og yngstur fimm bræðra. Sigurður var borin...
Örn Bárður Jónsson skrifar: Gazalegur vandi
📅 15.10.2026 👁️ 4
Örn Bárður Jónsson skrifar: Gazalegur vandi
Í orðræðu á samfélagsmiðlum, þar sem talað er í símskeytastíl í hita leiks, fer ýmislegt forgörðum. Umræðan verður oft að eintómum upphrópunum og sleg...
Orðið á götunni: Hræsni og ábyrgðarleysi Rósu
📅 15.10.2026 👁️ 4
Orðið á götunni: Hræsni og ábyrgðarleysi Rósu
Á Alþingi talar nú Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fyrir því að fella niður erfðafjárskatt, bara sisvona með engum fyrirvara og ...
Lést í stormi í Fær­eyjum - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 4
Lést í stormi í Fær­eyjum - Vísir
Færeyska ríkisútvarpið greinir frá en í frétt miðilsins segir að starfsfólk hjá danska fyrirtækinu Bygma, sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á byggi...
Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 4
Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum - Vísir
Þetta segir Jón í samtali við Vísi. Líkt og komið hefur fram greindi hann frá því við upphaf þingfundar í dag að hann hefði sagt sig úr þingflokki Við...
Kostnaður við Barnaskóla Kársness langt yfir áætlun og bærinn sækir fullar heimtur
📅 15.10.2026 👁️ 4
Kostnaður við Barnaskóla Kársness langt yfir áætlun og bærinn sækir fullar heimtur
Kópavogsbær ætlar að sækja fullar heimtur vegna vanefnda vertakafyrirtækis við byggingu Barnaskóla Kársness. Kröfurnar hljóða upp á 3,9 milljarða krón...