Átta hermdu eftir Ara Edwald

Ari EdwaldEr orðinn borgarfulltrúi
Mynd: Golli
Í gær var greint frá því í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að sjö manns hefðu ekið inn göngugötu og þau mál hefðu verið afgreidd á vettvangi.
Nú hefur sú tala verið uppfærð í átta og greinir Morgunblaðið frá því að göngugatan sem um ræðir sé Austurstræti en sú komst heldur betur í fréttirnar í apríl þegar Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, birti myndband af sér að aka hana í miðri kosningabaráttu til að kvarta undan bílastæðaskorti.
„Ég vissi ekki að bílaumferð væri bönnuð þarna (sá ekki skiltin, var að horfa á myndirnar af sundlaugunum),“ skrifaði Ari á samfélagsmiðla eftir að hann var gagnrýndur fyrir lögbrotið.
Stranglega bannað að taka vinstri beygju