Atli Fannar Bjarkason, þáttastjórnandi Morgunútvarpsins á Rás 2, hefur beðist afsökunar á ummælum sínum um að konur vandi sig síður við að raða vel í uppþvottavélina. Ummælin voru látin falla í þættinum síðasta föstudag þar sem Atli Fannar og Guðrún Dís Emilsdóttir, Gunna Dís, voru að fara yfir fréttir vikunnar.Þá sagði Atli Fannar: „Ég vil ekki vera leiðinlegur en er þetta ekki fyrst og fremst vandamál kvenna að raða vitlaust í vélina?“Gunna Dís brást við samstundis: „Jesús minn!“
Atli Fannar biðst afsökunar á ummælum sínum: „Ég brást móður minni, eiginkonu og ekki síst dóttur“