Þrír unglingar féllu og fimm særðust í skotárás í menntaskóla í borginni Tacloban í Filippseyjum í morgun. Hinir grunuðu eru 14 og 15 ára gamlir nemendur skólans sem sagðir eru hafa hafið skothríð „af handahófi“ innan veggja skólans.
Yfirmaður hjá filippseysku lögreglunni tjáði fréttastofu AFP að samkvæmt fyrstu upplýsingum hafi einelti verið kveikjan að árásinni.
Til rannsóknar sé hvar árásarmennirnir komust yfir skotvopn og hvernig þeir komu þeim inn í skólann.
Samkvæmt frétt AFP eru skotárásir í skólum afar sjaldgæfar í Filippseyjum.