Það má víða búast við skúrum á landinu í dag en vindur verður hægur.
Í dag verður fremur hæg suðlæg eða breytileg átt og víða verða skúrir. Hitinn verður á bilinu 8 til 15 stig.
Á morgun er spáð austlægri eða breytilegri átt 3-8 m/s en 8-13 m/s syðst. Það verður dálítil rigning syðst á landinu en annars skýjað en úrkomulítið. Hitinn verður yfirleitt á bilinu 10 til 16 stig.