Andy Burnham þykir líklegur arftaki Starmers. En hver er hann?
Burnham hefur verið borgarstjóri Manchester í níu ár. Hann var áður á breska þinginu sem fulltrúi Leigh á árunum 2001-2017. Hann hefur tvisvar sinnum boðið sig fram sem leiðtoga Verkamannaflokksins, 2010 og 2015, en tapað í bæði skiptin.
Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir birti þessa góðu samantekt um Burnham á dögunum.
The Guardian segir á forsíðu sinni að Starmer ætli að tilkynna um hvenær hann hverfi frá störfum og Daily Telegraph greinir frá því að Burnham ætli sér að verða forsætisráðherra Breta fyrir september.
The Independent vitnar svo í Donald Trump Bandaríkjaforseta sem sagði á samfélagsmiðlum í gær að Starmer ætli að segja af sér. Samkvæmt Downingstræti 10 hafa Starmer og Trump ekki talað saman um helgina.
BBC hefur tekið saman forsíður allra helstu dagblaða Bretlands í dag.
Góðan dag.
Augu heimsins verða að líkindum á Downingstræti 10 í London í dag. Búist er við því að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Verkamannaflokksins, tilkynni í dag hvort hann segi af sér embætti og þá hvenær hann víki.
Andy Burnham, fráfarandi borgarstjóri Manchester, vann þingsæti fyrir Verkamannaflokkinn með miklum meirihluta atkvæða í aukakosningum sem haldnar voru á fimmtudaginn og hann þykir líklegur arftaki Starmers.
Starmer hefur legið undir feldi um helgina og er sagður hafa ráðfært sig við fjölskyldu sína og fleiri um stöðu sína og næstu skref. Fjölmiðlar í Bretlandi fylgjast náið með framvindu mála og fjöldi fjölmiðlafólks er nú við Downingstræti 10.